SAMVINNAN 95 af fæði. því sem námsfólki er boðið til sölu, er miklu meira miðað við atvinnuþörf seljenda en heilsu og fram- tíð aðkomu-unglinganna. Óvild sú hin mikla sem lögð hef- ir verið bæði á mötuneyti stúdenta og skólanna tveggja, er saman búa, stafar einmitt frá atvinnuhliðinni á mat- sölu til aðkomumanna í bænum. pess skal þakklátlega minst að stjórn Sambandsins gaf Samvinnuskólanum nú í vetur 3000 kr. virði í alls- konar áhöldum, sem mötuneytið þarf við starfsemi sína, og litlu síðar gaf Alþingi Kennaraskólanum jafnháa upp- hæð í sama skyni. þessi stuðningur var frá báðum aðil- um veittur í því skyni, að gera aðkomuf ólki í skólum þess- um ódýrari veruna, heldur en annars yrði. Eins og næstliðinn vetur stunduðu nemendur skólans sund með allmiklum áhuga. Fóru venjulega 12 á viku í bíl inn í Laugar þegar veður leyfði. Enginn nemenda var ósyndur eftir veturinn. Sumir kunnu áður nokkuð. En öllum fór mikið fram, og töldu sig hafa bæði gagn og ánægju af ferðunum í Laugarnar. Nemendur héldu málfundi einu sinni í hálfum mán- uði og gáfu út skrifað blað. Á málfundum þessum fædd- ist sú hugmynd, að nemendur Samvinnuskólans skyldu stofna með sér félag til að viðhalda kynningunni, gefa út vélritað félagsblað, er allir félagsmenn skyldu fá, og hafa allsherj arfund saman 10. hvert ár, en í fyrsta skifti á pingvöllum 1930. Eldri nemendur, sem kynnu að vilja vita meira um þennan félagsskap fá vitneskju um alt er að þessu máli lýtur hjá Sigurliða Kristjánssyni, kaup- félaginu í Reykjavík.