Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1939, Blaðsíða 8

Samvinnan - 01.03.1939, Blaðsíða 8
SAMVINNAN 3. HEFTI Sápuverksmiðjan Sjöfn á Akureyri Sápuverksmiðjan Sjöfn á Akureyri er eign Sam- bands ísl. Samvinnufélaga, og Kaupfélags Eyfirðinga. Verksmiðjan var stofnsett árið 1932. Hin fyrstu húsa- kynni hennar voru skúr áfastur við Smjörlíkisgerð K. E. A. og hluti af kjallara í sama húsi. Framleiðsla hennar fyrsta árið var því nær eingöngu blautasápa, þó var hafin lítilsháttar framleiðsla á handsápum og stangasápum. 1934 losnaði húsnæði það við Kaupvangsstræti, er starfrækt hafði verið í Gærurotun S í. S. Var þá hús það endurbyggt og breytt, og verksmiðjan flutt þangað það ár. Fékk hún við það stóraukin skilyrði til nýrra framkvæmda, enda bætti hún við sig það ár nýjum vélum, svo sem til kertaframleiðslu, kremvélum, og síðast en ekki sízt, vélum til handsápuframleiðslu, þar á meðal eltivél. Handsápur þær, er hún hafði áður framleitt, voru kaldhrærðar, en þær sápur geta ekki haft meira fitusýrumagn en 60—65%, eru þær af þeim ástæðum verri. Með hinum nýju vélum verður öll blöndun sápunnar nákvæmari og fitusýru innihaldið getur verið 80— 85%. Má af því sjá, hve stór munur þetta er upp á notagildi handsápunnar. Sjöfn var um nokkur ár eina innlenda verksmiðjan, er þessar vélar notaði, og náði við það meiri vinsældum en ella. Framleiðsla Sjafnar árið 1934 var í stórum dráttum sem hér segir: 56,500 kg. blautasápa, 11,850 kg. stangasápa, 2,256 dús. hand- sápa, 2,800 pk. jólakerti, 900 dús. skóáburður, 300 dús. húðkrem og 180 dús. gljávax. Sýndi þessi stækkun verksmiðjunnar og vélaaukning þegar góðan árangur, þótt hún starfaði aðeins tæplega hálft árið við hin bættu skilyrði. Árið eftir varð mjög mikil aukning á framleiðslu verksmiðjunnar, bæði að vörumagni, og jafnframt um tilbúning á nýjum vörum. Helstu vörurnar voru: Kítti, raksápa, nýjar tegundir af handsápu, hár- þvottalögur og júgursmyrsl. Má óhætt telja það stór- an viðburð í sögu verksmiðjunnar að hafin skyldi framleiðsla júgursmyrsla, sýna það vinsældir þess og um leið vaxandi sala ár frá ári. Þetta fyrsta ár varð sala þess 1600 dósir, en er nú í árslok 1938 6000 dósir. Árið 1936 gerði verksmiðjan bæði, að auka sölu á framleiðsluvörum sínum og bæta við sig nýjum teg- undum; má fyrst telja hið vinsæla þvottaduft „Perlu“, nam framleiðsla þess þetta fyrsta ár 25000 pk. en í árslok 1938 100,000 pk. Kostaði þessi nýja framleiðsla Sápuverksmiðjan Sjöfn eins og hún lítur nú út. Nokkur sýnishorn af framleiðslu Sjafnar. 40

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.