Sambandslög íslcnzkra kaupfjelaga. 1. gr. Tilgangur sambandsins er sá, að vinna að útbreiðslu og eflingu kaupfjelagsskaparins hjer á landi, að auka sem mést kunnuglcika og traust hinna ýmsu kaupfjelaga (pönt- unarfjelaga og verzlunarfjelaga) sín á milli og að koma á samvinnu milli fjelaganna í hinum ýmsu áhuganiálum þeirra. 2. gr. Sambandið heldur aðalfundi annaðhvort ár, þegar al- þingi kemur saman. Aukafundi skal halda, ef meiri hluti fjelaganna í sambandinu óskar." Fundir skulu haldnir í Reykjavík, nema næsti fundur á undan haíi ákveðið ann- an fundarstað. Sambandsfundur kýs í hvert skifti fundarstjóra og skrifara, og rita þeir nöfn sín undir fundargerðir. Gerða- bók skal lesin upp og samþykkt, áður en fundi er slitið. 3. gr. , Nú óskar eitthvert fjelag inngöngu í sambandið, og sker sambandsfundur úr, hvort fjelaginu skuli veitt inn- ganga eður eigi. Aðalfundur getur og veitt fyrirfram til- boð um inngöngu í sambandið þeim fjelögum, er hann til- tekur; teljast þau fjelög með í sambandinu jafnskjótt og þau sæta tilboðinu, og eru þegar háð lögum þessum. 4. gr. Hvert fielag sendir að minnsta kosti einn fulltrúa á sambandsfund, en heimilt er hverju fjelagi að senda tvo fulltrúa, ef útfluttar vörur þess næsta ár á undan hafa numið 60 þúsundum króna eftir nettóverði.