5. gr. Á aðalfundi skal kosinn formaður til að hafa á hendi stjórn sambandsius, og annar til vara, er gegni formanns- störfum í forföllum hans. Kosning þeirra gildir til næsta aðalfundar. Formaður kveður til funda og framkvæmir þau störf, er fundir fela honum á hendur; hann veitir móttöku brjef- um og skýrslum, er sambandið snerta og leggur þau fram á fundum. Hann hefir á hendi brjefaskriftir og önnur rit- störf í sambandsins þarfir. Hann semur reikning yfir tekj- ur og gjöld sambandsins fyrir hver 2 ár og leggur hann fram til endurskoðunar og samþykktar á aðalfundi. 6. gr. Á aðalfundi skal kjósa mann til að sjá um útgáfu tímarits, er sambandið gefur út að minnsta kosti annað- hvort ár. Þar skal prenta ritgerðir um kaupfjelagsmál og hagskýrslur kaupfjelaganna, svo sem skrár yfir aðfluttar og útfluttar vörur með álögðum kostnaði, yfirlit yfir fjár- hag fjelaganna, eignir og skuldir. Skj^rslur þessar skulu fjelögin senda formanni sambandsins við lok hvers árs. Fyrir ritgerðir, er teknar verða í tímarit sambandsins, má greiða ritlaun, allt að 25 kr. fyrir örkina. 7. gr. Sambandsfundur úrskurðar reikninga yfir kostnað við stjórn sambandsins (o: fundahússleigu, borgun fyrir ritstörf og ómakslaun formanns). Kostnaði þessum, svo og prent- unarkostnaði og ritlaunum samkvæmt 6. gr., skal sambands- fundur jafna niður á öll fjelögin þannig, að ?/8 komi jafnt niður á hvert fjelag fyrir sig, en 2/3 fari eftir nettóverði útfluttra vara í fjelögunum næsta ár á undan. 8. gr. Að undanskildum kostnaði þeim, er ræðir um í 7. gr., má sambandsfundur eigi leggja neitt gjald á kaupfjelögin, nema samþykki þeirra komi til. 9. gr. Vilji eitthvert fjelag ganga úr sambandinu, verður