,Ófeií !"¦ iigur heitir blaðkríli, sem gefið hefir verið út í kaupfjel. Þing- eyinga siðan 1890 og á kostnað þess. Eins og vitanlegt er, þá er blað þetta óprentað og afskrifað i niestalagi eitt eintak í hverja deild. Oft hafa tvær deildir verið um sama eintakið. Útgáfa Ófeigs hefir kostað fjelagið frá 50100 krónur á ári. Flest þau mál, sem K. Þ. hefir varðað síðan blaðið var stofnað, hafa meira og minna verið rædd í því. Svo hefir og blaðið flutt ágrip af aðalreikaingum fjelags- ins og ýmsar fróðlegar skýrslur; ennfremur allar fundar- gerðir og reglur þær í fjelaginu, sem settar hafa verið á þessu tímabili. En blaðið hefir og, þótt rúmlítið sje, fjall- að um fleira en hið yfirstandandi. Það hefir hreyft flestum eða öllum þeim framtíðar hugsjónum, snertandi kaupfjelags- skapinn, sem bólað hefir á í þessu hjeraði, og þannig kynnt þær öllum þorra fjelagsmanna jafnótt. Mismunandi skoð- anir hafa komið fram í þessum efnum eins og öðrum, og hefir Ófeigur orðið til þess að leiða þær saman. Af því inngangur blaðsins lýsir allvel þeim hug og hvötum, sem' komu blaðinu á fót, birti jeg hann hjer og er hann svo hljóðandi: Neyðin kennir naktri konu að spinna". Neyðin kennir roörg- um fleiri að spinua, þótt það sjeu ekki niargir, sem spinna silki". Hún hefir kennt margt af því, sera gott er og gagnlegt í heiminum. Marg- ir hugvitsmenn og frumherjar framfaranna hafa út úr neyðinni spunn- ið ofl náttúrunnar inn í fullnægingar mannþarfanna. Kn neyðin heflr kenut mönnum fleira en að spinna, fleira on að spinna sinn þáttinn hver; hún hefir kennt mönnum að leggja þættina saman, sameina krapt- ana, að sameina eptirlanganir og hugsjónir manna, að vekja sofin öfl og hrinda þeim á stað, hrinda þeim á stað gegn tálmunum andlegrar og fjá.rmunalegrar ánauðar. Það hefir lengi verið á orði, að ekki hafi önnur meiri ánauð, kúgun og