34 sem reknar eru í verksmiðjum auðmanna1. Er það eftir- tektavert, að einmitt hinir stækustu andstæðingar sósíal- ista urðu fyrstir til að framkvæma hugmyndir þeirra; sýn- ir það, hve mikill praktiskur sannleiki var fólginn í þeim. 1 mörg ár hefir allri sykurframleiðslu og sykurhreinsun í Bandafylkjum Ameríku verið stjórnað á skrifstofum eins slíks trust" í Nýu Jórvík, Boston, Chicago og San Fran- cisko. Með því hefir verið sparað ákaflega mikið fé, þar sem verksmiðjurnar hafa losast alveg við að hafa sérstak- ar skrifstofur, agenta, umboðsmenn og útsölustaði, er kepptu hver við annan, og eyðilögðu hver annan, og afleiðingin er, að sykurinn hefir lækknð mjög í verði, og framleið- endur þð fengið meiri ágóða, og getað goldið verkmönnum sínum hærra kaup en áður. Þetta er nú, eins og allir sjá, nokkurn veginn hið sama, sem að landstjórnin hefði alla yfirumsjón með framleiðslu og útsölu varanna. Einungis er sá hængur á þessu fyrirkomulagi, að einmitt af því það er ekki sjálf landstjórnin, seni hefir yfirumsjónina, þá geta þessir stóreignamenn, er sjálfir ráða sínu skipu- lagi, notað það til eigin hagsmuna með því t. d. að fram- Ieiða svo lítið, að verðið hljóti að hækka, og þetta hafa þeir líka stökusinnum reynt, einkum er kaup verkmanna hefir hækkað. En án sliks skipulags ræður hending ein því, hvort hinir einstöku framleiðendur hitta á að fram- leiða hæfilegan forð t handa þjóðunum af hverri vöru sem er, enda er ekkert tíðara, en að þurð verði á einhverri vörutegund, svo að hún verði óhæfilega dýr, eða jafnvel ófáanleg fyrir fjölda manna, sem og hitt, að ofmikið sé framleitt af vöru, svo hún falli hóflaust í verði og fram- leiðendur hennar þúsundum saman fari á vonarvöl, og verði að atvinnulausum landhlaupurum og óróaseggjum. En það, sem eftirtektaverðast er við þessa hreyfingu, *) Hið samoiuaða gufuskipafélag er eitt af þessum trusts", þar sem gufuskipaeigendur hafa geit fjárlag með sér, í stað þeBS að keppa hver við anuiiu; en af þvi félag þetta stendur ekki undir hiuu almenna löggjafarvaldi, þá er það einskonar einokun.