Skipulag. Ég trui þvl, sannleiki, að sigurinn þinn að siðust vegina jafni;....... og þvf stig ég hiklaust og vonglaður inn, i frelsandi fraratiðar nafni". Nýlega kom út á Englandi bók ein, er vakti mikla eftirtekt.1 Höfundurinn heldur því fram, meðal annars, að andlegir hæfileikar og þroski einstaklinganna meðal Ev- rópuþjóða nú á tímum séu í rauninni engu meiri en hjá hálfviltum þjóðum, eða hjá fornaldarþjóðunum. Annar merkur rithöfundur2 hefir haldið því fram, að Forngrikkir hafi haft eins mikla andans yfirburði yfir Evrópumenn nú á tímum, eins og þeir hafi nú yfir blámönnum. Gladstone gamli hefir lika komist að þeirri niðurstöðu, að miðalda- menn hafi verið búnir meira andlegu atgervi en nútíma- menn. Það er ýmislegt, sem bendir til, að þessar skoð- anir séu á rökum bygðar. Norðurálfuménn hafa litið með fyrirlitningu til Japansmanna og Kínverja, en nú sýnir reynslan, að þegar þeim gefst færi á að læra, þá hafa þeir fullt eins góðar gáfur" sem Norðurálfumenn. Það eru ýmsar líkur til þess, að í sumum viltum þjóð- um séu hraustari og betur bygðir heilar, en til eru í nokkurri hauskúpu í Norðurálfunni. En þessir villimanna- heilar hafa önnur ytri skilyrði en hjá oss. Þeir hafa ann- að starf að leysa en vorir heilar. Væri þeim fengið hið sama starf, eru líkur til, að þeir mundu leysa það eins vel af hendi, sem vorir heilar nú gera. Að námsgáfum eru biámenn ckki eftirbátar hvítra manna, Þá skortir ekki heila, þá skortir að eins skóla. í barnaskólum Bandafylkj- 1) Benjamin Kidd: Social Evolution" == Félagsleg framþróun. 2) Galton: Heréditary Geniua" (andans arfur).