53 mcnn leitað ýmist í hinu innra sálarlífi mannsins, og það- an eru sprottnar allar trúarlegar umbótatilraunir og trúar- brögð, er heita mönnum fullum bótum á öllu böli og mein- um lífsins, ýmist í þeirra eigin innra sálarástandi ogmeð- vitund, eða í öðru lífi, því að þetta líf sé ómögulegt að bæta, eða menn leita orsakanna í hinu ytra skipulagi og tilhögun á mannfélaginu. Þaðan eru sprottnar allarverk- legar umbætur á ytri kjörum manna. Með hvortveggi að- ferðinni hefir mikið unnist, en þó ætíð minna en menn höfðu gert sér vonir um. Sérhver trúboði og trú- arflokkur hefir trúað því fyllilega, að haDn hafi höndlað allan sannleika, að væri kenningu hans og lífsskoðun full- komlega f}dgt, þá væri bætt úr öllu böli mannanna, ef ekki þessa heims, þá annars. Sömuleiðis hefir hinum fé- lagslegu umbótamönnum hætt til þess að treysta um of um- bótahugmyndum sínum. En við hvert umbóta- og menn- ingarstig, sem stigið hefir verið, hefir komið í Ijós ný hlið á mannlífinu, er menn ekki sáu áður, og þar hafa grafið um sig nj^ar og áður óþekktar mcinsemdir. Af þessu hef- ir svo af sumum verið dregin sú ályktuD, að lífið væri að éins gagnslaus kvöl, er eigi væri tilvinnandi að þola fyrir þau fáu gæði, er lífið hefði að bjóða, og sem ekki stjórn- aðist af neinu skynsamlegu eða siðferðislegn lögmáli. Þetta er rótin til hinnar myrku lífsskoðunar (pessimisma) þess- ara síðustu tíma. Af þessu er sprottin þreytan og vonleys- ið, sem gagntekið hefir hinar elstu kúltúrþjóðir. En það ástand hlýtur bráðlega að breytast. Með nýrri öld mun leggja nýa birtu á lífið, og nýir vcgir opnast. Því þú skalt ekki að eilífu efast um það, að aftur mun þar verða haldið af stað, uns brautin er brotin til enda-'. í fyllingu tímans mun koma sá Messías, er boðar nýa lifs- skoðun, og leysir mennina úr álögum og ánauð hins gamla skipulags. Þvi dómstóll ræður um ragna hvel, sem reynir hvern svikahnút; en fyrst má ormurinn út úr skel