Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1953, Blaðsíða 18

Samvinnan - 01.09.1953, Blaðsíða 18
kvenna AÐSENT BRÉF í kaupfélögunum OG ATHUGASEMD Grein um konurnar og samvinnuna birtist í maíhefti Samvinnunnar. Þar var rætt um að samvinnuhreyfingin þyrfti að fá konurnar meira í lið með sér en verið hefur. Þá var og sagt frá ýmiskonar starfsemi, sem kaupfélög- in hafa með höndum og vilja í fram- tíðinni rækja í þágu húsmæðra, auk þess sem þau bjóða þeim hagkvæm vörukaup. Þessa starfsemi kaupfélaganna, hvort sem eru kaffiboð og skemmti- fundir, námskeið eða ferðalög, ber eiginkonum félagsmanna kaupfélag- anna vissulega að meta. Næst samvinnuþvottahúsunum, sem raunar er ekki minnst á í grein- inni, eru ferðalögin, sem nokkur kaupfélög hafa boðið húsmæðrum í, efalaust þýðingarmesta starfsemin, af því að í þeim er fólgin viðurkenn- ing á þörf húsmæðra á orlofi, sem gleymst hefur í félagsmálalöggjöf þjóðarinnar. í áðurnefndri grein er sagt, að kaupfélagsstjórarnir hafi fyrir löngu komið auga á það, að víðasthvar tíðkist nokkur verkaskipting í af- skiptum hjóna af kaupfélögum: Eig- inmaðurinn er í kaupfélaginu, mætir á fundum þess og greiðir atkvæði, en eiginkonan hefur stjórn á innkaup- um í félagsbúðunum. Hefur giftum konum yfirleitt verið boðin önnur verkaskipting? Er kona félagsmanns í kaupfélagi einnig fullgildur félagi? Getur kona félagsmanns mætt á kaupfélagsfundi í fjarveru manns síns og haft þar jull réttindi, án skriflegs umboðs (eða kannske ekki einu sinni með því)? Ætlast kaupfélögin til þess, að hjón séu bæði félagar? Tíðkast það, að hjón séu bæði fé- lagar í kaupfélagi? Þessum spurningum mun sennilega öllum verða svarað neitandi. Hvern- ig er þá hægt að vænta þess, að kaup- félögin fái konurnar meira í lið með sér en verið hefur? Kaupfélögin eru fyrst og fremst félög í þágu heimilanna, — annars eðlis en flest önnur félög, — og er því ekkert sjálfsagðara en að hjón séu jafnréttháir aðilar að þeim fé- lagsskap. Kaupfélögin fara að vissu leyti með fjármál þeirra heimila, sem ein- vörðungu eða mestmegnis skipta við þau. Þar sem hjón hafa skv. hjóna- bandslögum fullt jafnrétti um fjár- mál sín og gift kona telst, skv. 33. grein stjórnarskrárinnar, fjár síns ráðandi, þótt hún eigi óskilið fjár- lag með manni sínum, ættu giftar konur að eiga fullan rétt á að vera atkvæðisbærar um fjármál sín í kaup- félaginu, engu síður en þær eru at- kvæðisbærar í þjóðfélagsmálum, síð- an þær voru viðurkenndir fullgildir borgarar. Þegar réttur húsmæðra í kaupfé- lögum er orðinn meiri en sá einn, að mega verila þar út á nafn eiginmanna sinna og þiggja boð félaganna, er hægt að vænta meira af þeim. Þá fyrst er hægt að hafa raunveru- legar húsmæðradeildir, ef þær þá eiga að vera til frekar en sérstakar húsbeendadeildir. Samvinna karla og kvenna ætti að ríkja í kaupfélögum. Hjón ættu jafnan bæði að vera fé- lagar í kaupfélagi. Hitt ætti að vera undantekning, — heimild í félagslög- um, — að annað hjóna væri félagi. Jafnrétti hjóna í kaupféiagsmálum ætti að vera fyrsta svar húsmæðra til samvinnuhreyfingarinnar, þegar hún óskar eftir þeim í lið með sér. Anna Sigurðardóttir, Eskifirði. A thugasemd. Samvinnan vill þakka þessa að- sendu grein og þann ánægjulega á- hugavott, sem fram kemur í henni. Hins vegar verður ekki komizt hjá • því að leiðrétta nokkurn misskiln- ing, sem fram kemur í greininni um stöðu kvenna innan kaupfélaganna. Er rétt að hafa í huga eftirfarandi atriði, þegar þessi mál eru rædd: 1) Það er ekkert því til fyrirstöðu, að hjón geti bæði verið meðlimir kaupfélags, og mun það ekki vera ó- algengt víða um land. Hafa þau þá bæði full félagsréttindi að lögum og geta bæði farið með trúnaðarstöður. 2) Öll kaupfélögin hafa í lögum sínum ákvæði um það, að félagsmað- ur megi gefa maka umboð til að mæta fyrir sig á félagsfundum. Eitt kaup- félag orðar þetta ákvæði meira að Segja svo: „Þó getur kona falið manni sínum rrteðferð atkvæðis á hverfis- fundum og gagnkvæmt, enda hafi ekki nema annað félagsréttindi.“ Eins og fram kemur í þessari síðustu tilvitnun, hefur aðeins annað hjóna full félagsréttindi, ef aðeins annað þeirra er í félaginu. 3) Spurningunni um það, hvort kaupfélögin ætlist til, að hjón séu bæði félagar, er ekki hægt að svara með öðru en því, að lög félaganna gera fyllilega ráð fyrir, að svo geti •verið. Af þessum upplýsingum er það von- andi ljóst, að hjón búa við fullkomið jafnrétti í kaupfélögunum, ef þau vilja nota sér það og ganga bæði í félögin. Það er fyllilega opið hús- mæðrum að taka virkari þátt í fé- lagsstarfinu og einmitt vegna afstöðu þeirra á heimilunum er ástæða til að vona, að þær geri það í ríkari mæli en hingað til. 18

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.