Neisti - 01.12.1965, Blaðsíða 21

Neisti - 01.12.1965, Blaðsíða 21
DÆGURVÍSA eftir Jakobínu Sigurðardóttur 176 bls. prentuð í Alþýðuprentsm. CJtvarpið telur íslenzkum húsmæðrum ekki bjóðandi aðrar bókmenntir, en kjaftasögur af aumasta tagi. Nú hefur húsmóðir f Mývatns- sveit sent frá sér skáldsögu, er sannar það, sem við vissum áður, að mat útvarpsmanna er stór- undarlegt. Hún Jakobfna Sigurðardóttir er að vfsu ekki venjuleg húsmóðir né kona yfirleitt. Hún er kraftaskáldið okkar Hornstrendinga, sú sem hrakti amerfska flotann burt frá ströndum þeirrar eyddu byggðar með einu mögnuðu ljóði. Dægurvfsa gerist á einum degi f einu húsi við rólega götu f Reykjavík, líklega f Norðurmýr- inni. Þetta er "kollektfv" saga. Aðalpersóna er engin sérstök, persónur eru allir íbúar þessa tveggja hæða húss. Reykvíkingur myndi naum- ast skrifa svona sögu, og sfzt nú 1965, en sag- an er reykvfsk að anda. " Það hafa fallið skúrir meðan bærinn svaf. Ekki þessar stóru hvolfur, — ofsafengnar eins og tár ástrfðuheitrar konu, heldur gagnsæjar skúrir, hlýjar f logninu —. " Þessi upphafsorð bókarinnar eru að nokkru einkennandi fyrir söguna. Hún er ekki annáll stórbrotinna átaka, ekki lýsing á lffi og hugsunum mikilla um- bótafrömuða, manna híns nýja tfma. Að þvf leyti er sagan táknræn. Á gruggugum forarpolli fslenzks þjóðlffs hafa ekki risið neinar haföldur, aðeins gárar öðru hverju. Það er reyndar trú mfn, að nú sé hann að hvessa, en tilgangur þessarar sögu er ekki að boða komandi umbrota- tfma. Hafi einhver tekið til við að brjótast um og reyna að skapa merkilega hluti, hefur hann all staðar runnið á vegg, unz hann gafst upp eða fylltist neikvæðri fyrirlitningu. Byltingar- maðurinn f Dægurvfsu, öli, safnar undirskrift- um undir ávarp friðar og afvopnunar. Viðbrögð íbúa hússins sýna okkur, að þetta fólk er steinar f þeim múr, sem hræddum og vesölum ráða- mönnum þjóðarinnar hefur tekizt að hlaða gegn skoðanafrelsi. já hugsanafrelsi. óli er á vissan hátt framandi fheimi bókarinnar, enda kemur f ljós, að hann gerir ekki byltingu fbráð. Annars vinn ég suður á Velli á daginn ", Sagan er þó ekki þjóðfélagsleg f venjulegum skilningi. Þungamiðja sögunnar er lffið, þar liggur áherzla höfundar. Lffið, með stórum staf. Það byltist ekki fram líkt og jökulelfa f ham, það streymir áfram þungt og óstöðvandi, breið lygn móða. 'Þetta er það, sem Jakobfna segir okkur, og hún segir það f nær ótrúlega heilsteyptri og sterkri frásögn. Lff einstaklingsins.hverfult og brotgjarnt, þáttur f Lffinu f sinni miklu og margvfslegu heild. Hún leggur áherzlu á þátt- töku allra, lifandi vera sem dauðra hluta. Fólk- ið f húsinu, þessi margliti hópur. Húsið sjálft, fmynd góðborgarans : " Hvað er varið f að fljúga ?------Það er grunnurinn, sem gildir ". Gatan, strætisvagninn: " hann er orðinn þreytt- ur - - . Hann lætur sér nægja að ræskja sig ör- Ifrið um leið og hann beygir fyrir hornið — ". Þrestirnir eru notaðir til undirstrikunar, skamm- lffir, líkt og ánamaðkarnir, en syngja " þetta lag, sem er þó varla neitt lag, sömu tónarnir aftur og aftur : - Lifa - lifa ". Einstaklingurinn lífnar og deyr, en heildin lifir. " Innan fárra daga verður lík gamals manns flutt til hinztu hvflu — . Göngu hans er lokið. Og um sama leyti mun nýr maður hefja lffsgöngu sfna, — með gráti og hjartslætti. ” A innu ieitinu er vamnáttur og skilningsskortur einstaklinganna gagnvart þessu lffi, sem aldrei staldrar við, aldrei lftur um öxl. Lfna gerir uppreisn gegn móður sinni, finnur hvergi til- gang nema f draumum sfnum, en við kynn- umst ekki þvf umhverfi, sem veldur, okkur grunar, en við sjáum ekki Elskendurnir tveir, sem lýst ér af undraverðu næmi og hlýju, þau eru " tvö saklaus börn — á óverðskulduðum flótta. " Og afdrep þeirra á flóttanum " mun jafnað við jörðu, troðið niður af miskunnar- lausum fótum." Þetta vitum við að er rétt, en hverra eru þeir fætur, sem traðka á hamingju þeirra? öli er sá eini, sem ekki bregzt þegjandi við þvf, sem gerist, en hans mið er of langt utan hins þrönga heims fólksins f húsinu, hann verður f raun jafn vanmegna og hin. En Jakobfna setur sér ekki það mark, að leysa úr spurningu um tilgang eða tilveru mannsins. Og hún leitar hreint ekki til þess blessaða guðs almáttugs, sem við höfum dregist með f bak og fyrir nú um sinn. Einhvern tfma hefði hún verið kölluð panteisti. Hennar verkefni er tilveran eins og hún kemur fyrir á ákveðnum tfma, sem reyndar er að nokkru orðin fortfð, á ákveðnum stað, en þó f tengslum við heild- ina, það lff, sem er f raun. " Nei, Kiljan hefir sagt eitt satt orð, þó hann sé kommún- isti, sannleikurinn er ekki f bókum. Ekki nema fyrir þá, sem ekki nenna að lifa " segir séra Björnólfur. (Reyndar stendur :" sem nenna að lifa. " en getur naumast átt að vera þannig.) Kennslukonan, öfundar það lff sem hún ekki áttaði sig á að lifa meðan tfmi var til, hún er lesin. " Hún hefir lesið margt og hugsað mik- ið, hún veit miklu meira um bókmenntir en margir, sem teljast ffnt fólk — . " Þannig vefur Jakobfna sinn marglita vef, sem er, en ekki leitar uppruna sfns. Kynslóðir bókarinnar eru þrjár. Sú elzta, Ingi- mundur, heiðarleg og ber virðingu fyrir öllu lffi, reynd á umbrotasamri æfi, en skilur ekki samhengi þess, sem yfir hana hefur dunið. Miðkynslóðin, Svava, grunn og innantóm, hugsar fbflum og mublum, og elur af sér ómerkilega listamenn eins og Hidda. Og sú yngsta, það er hún, sem ber von. Þá von gefur NHSIT Ingi, það er ekki tilviljun sú áherzla, sem höfundur leggur á hann vfða f bókinni. Ég sakna eldri fulltrúa hans kynslóðar, þeir eru vissulega til. Bókin er skrifuð af mikilli kunnáttu, varla brestur á. Það er þá helzt á bls. 109, móðir Svövu talar of lengi um eitt og annað áður en hún segir dóttur sinni frá veikindum og fyrirsjáanlegum dauða tengdaföður hennar. Persónulýsingar eru skýrar og óvenjulega næmar. Jakobfnu lætur jafn vel að sýna gelgjuóra telpunnar Lfnu og hugarástand verð- andi föður, og er þó hreint útilokað, að höf- undur hafi nokkurn tfma staðið f sporum hans. Svava, frúin f húsinu, er á margan hátt erf- iðust viðureignar, sakir þess tómahljóðs, sem bergmálar hvar sem við hana er komið, en höfundi bregzt ekki. " Já, maður ætti að hafa frið, frið til að lifa, frið til að elska, frið til að heyra og sjá og finna til. Og frið til að deyja.---Það er gott, að til eru vitrir menn, — sem vilja láta hana og alla hina mörgu og smáu rfsa gegn þeim, sem lfta á aðra menn eins og orma, sem einskisvert sé að traðka f sundur. — Þegar nógu margir rfsa upp til að eyði- leggja vopnin, verður það gert. Og þegar það hefir verið gert, þegar ótti og tortryggni vofa ekki lengur yfir, þá - þá hljóta menn að hætta að horfa hver á annan eins og orma, fædda og ófædda." Þannig hugsar Asa, móðir litla föðurlausa Ogga, sfðast fbókinni. Og þetta eiru lokaorð Jakobfnu til okkar. Dægurvfsa er ein af beztu skáldsögum, sem fram hafa komið f mörg ár, og þarf ég þá ekki að miða við " kellingabækur". Jakobfna Sigurðardóttir á margan óð f sfnum seið. Hún er mikil galdrakona. Eyvindur Eiríksson. PÆ6IIRVISA DÆ6URVÍSA _ * 21

x

Neisti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.