Verklýðsblaðið - 11.04.1936, Blaðsíða 3
VERKLtÐSBLAÐIÐ
VEOKLÝOÍBLAÐIÖ
Ú%afuMU:
KOMMÚNISTAFL. ISLANDS
Bitstjóri:
ELNAlt OLGEIRSSON.
ÁJgr.: VatnAHti* 8 (þriðju hmO).
Sími: 2184. — Pósthólí 57.
Prentaraiðjau Aete h.l.
KOMMtTNISTAFLOKKUR
tSLANDS
(Dcðld ftr Alþjðtte-
H»«vb»TMll kommftntota).
FormaSur;
BEYNJÖLFUR BJARNASON.
SkrlfBtofa: Vatnwttf 8 (8. btoð).
ViftUtotlml:
Daciega kl. 0—7, Tirka dagt.
InnflutaiÐgsköftin
oé vöruverðið
Síðan farið var að framkvæma
innflutningshöftin hafa þau stöð-
ugt gert einstökum innflytjendum
— heildsölum — mögulegt að
okra á vörum, sém þeir hafa
fengið innflutnings- og gjaldeyr-
isleyfi fyrir. Og núna þegar gjald-
eyriserfiðleikarnir stöðugt auk-
ast, þá aukast. einnig möguleikar
þeirra heildsala, sem eitthvað fá
að flytja inn, til þessa okurs.
Þannig mun venjuleg álagnihg
heildsala á matvörur og aðrar
nauðsynjavörur nú vera frá 30—
60 prósent. Þetta leiðir auðvitað
aftur til þess, að vörurnar verða
stöðugt dýrari fyrir neytendurna
og kjör smákaupmanna versna
að sama skapi.
Á næst síðasta Dagsbrúnar-
fundi sagði Har Guðmundsson ráð-
herra, að nauðsynlegt væri að
setja hámarksverð á innfluttar
vörur og gera aðrar þær ráð-
stafanir, sem nauðsynlegar eru til
að koma í veg fyrir okur heild-
salanna, sem fá að flytja inn
vörur. Síðan hefir ekkert heyrst
í því máli og þykir okkur verka-
mönnum það einkennilegt.
í vetur hækkaði smjörlíki um
20 aura kg., kolin um 5 kr. tonn-
ið í smásölu o. s. frv. og við það
bætist svo þessi stöðuga hækkun
á öðrum vörum, sem stafar af
ckrinu og skortinum á innflutn-
ingsvörunum.
Fyrir okkur verkámennina verð-
ur stöðugt erfiðara að borga
þennan milliliðagróða, þar sem
tekjur okkar fara stöðugt
minnkandi, einkum vegna at-
vinnuleysisins, sem stöðugt þreng-
ir meira að heimilum okkar. Við
hljótum þess vegna að krefjast
þess. að Haraldur fari að láta
eitthvað verða úr því, að gera
ráðstafanir til að minnka okrið
með því að setja hámarksverð á
vörur. Dagsbrúnarmaður.
Sella 3.
Félagar í sellu 3. Sellufundurinn
verður á þriðjudagskvöld á sama
stað og síðast. Kornið með nýja
félaga!
Nídin^sverkið gegn fóst-
urjörð svertin^jaima
Hvað gera friðarvínirnír ? Hvað éera Islendingar?
Fyrir augum allrai’ veraldarinn-
ar er verið að fremja eitt hrylli-
legasta níðingsverk 20. aldarinn-
ar, — að svifta síðustu sjálfstæðu
þjóðina í Afríku frelsi sínu. Með
eiturgasstyrjöld fasismans gegn
abessinsku þjóðinni, er verið að
nota „fullkomnustu“ tækni auð-
valdsins til að murka lífið úr
saklausum konum og börnum
svertingja, sem jafnvel ekki höfðu
hugmynd um hvernig bíll leit úr.
Það er verið að veita Þjóðabanda-
lagshugsjóninni rothoggið og það
eru aðalformælendur hennar, 'sem
gera það. Það er verið að setja
einn svartasta smánarblettinn á
svokallaða „menningu“ Evrópu -—
cg var þó ekki á bætandi.
Samúð alls þorra mannkynsins
er með Abessiníu. Flestallir menn,
r-ema hálfbrjálaðir hernaðarsinn-
ar, fyrirlíta af innsta hjarta fram-
ferði ítalska fasismans. Þjóða-
bandalagsráðið samþykkir að ít-
alía sé árásarþjóðin. Þjóðabanda-
íagið mótmælir því, að evrópiskir
rauða-kross hjúkrunarmenn séu
drepnir.
En hvað gera menn til að hjálpa
Abessiníumönnum, sem verið er
að níðast á?
Þjóðabandalagið semur álykt-
un og Eden heldur ræður, — en
brezku olíuhringarnir selja Itölum
olíu og benzín, svo þeir geti hald-
ið áfram flugvélaárásunum á
Harrar og hinar fáu borgir Abes-
siníu.
„Friðarvinimir“ tala, — en auð-
mannaklíkurnar framkvæma á
meðan sínar svívirðilegu fyrirætl-
anir.
Aflið, sem gat stöðvað þetta
stríð og getur það enn, er verka-
lýður Evrópu.
Strax í byrjun Abessiníustríðs-
ins gerði Alþjóðasamband kom-
múnista Alþjóðasambandi jafnað-
armanna tilboð um sameiginlega
baráttu gegn stríðinu. Fundur
var haldinn í framkv.nefnd II.
Internationale, en þar tókst ensku,
dönsku og sænsku sósíaldemo-
krataflokkunum, sem eru þeir aft-
urlialdssömustu í sambandinu, að
hindra að samfylking yrði gerð,
þó meirihluti sósíaldemokrata-
flokkanna í sambandinu væri með
samfylkingunni. Ofríki þeirra 5
flokka, sem voru á móti, (sér-
staklega enska flokksins) var svo
raikið að hin'ir borðu ekki að nota
vald sitt!
Höfnun þessa samfylkingartil-
boðs er eitt af örlagáríkustu vill-
um II. Alþjóðasambandsins. Með
því hefir nú verið hindrað að
verkalýðshreyfingin yrði það stór-
veldi, sem- kæfði árás fasismans á
Abessiníu í fæðingunni. Og með
þessari höfnun og þarmeð sundr-
ungu á kröftum verkalýðsins, er
Hitler gefið undir fótinn með yf-
irgang sinn og stríðsundirbúning.
Sök hinna afturhíildssömu for-
ingja í Alþjóðasambandi jafnað-
armanna er því þung — og nú
þegar Hitler notar sér sundrung-
arstarfsemi þeirra og samfylk-
ingarfjandskap, þá verður sök
þeirra enn þyngri, ef þeir ekki
breyta um stefnu.
Alþjóðasamband kommúnista
og Sovétríkin hafa gert það, sém
í þeirra valdi stóð til að sameina
verkalýðsstéttina og þær þjóðir,
sem vildu frið, — um að vernda
menningu, mannúð og' þjóðfrelsi
gegn dýrslegri grimmd, þjóðernis-
Sfephan G. Slephansson
opfi 1899 effirfapandi um
sfpíð Engiendinga
geqn Búum
„Mér íinixst minn andi espast við,
að eiga sjálfgeymt fé og blóð,
er betri málstað brestur lið —
en bíðum, ég á orð og ljóð!
Og verði þau í þetta sinn
að þunga dýpsta hugarmóðs,
að brennimarki á Kains kinn,
að klögun Abels dauðablóðs,
að vofu, er illspá æpa skal
að Englands her frá Búans val“.
Hver yrkir nú og talar eins gegnl
grimmdarstríði Mussolinis? I
..................
kúgun og stríðsofstæki fasism-
ans. Það að tilraunir þessar hafa
ckki borið meiri árangur, er sök
hinna hálfvolgu friðarvina og hik-
andi „verklýðssinna", sem tala
fagurt og gera — ekkert.
Island hefði átt að standa alveg
sérstaklega með abessinsku þjóð-
inni í þessu stríði. Við íslending-
ar erum fámenn, varnarlaus þjóð
— og ef við erum nokkrir menn,
þá ætti okkur að renna blóðið til
skyldunnar, þegar önnur fámenn
og vamarlítil þjóð verður fyrir
hinni blóðugu eiturgasárás hins
vilta fasisma. Og flestallir íslend-
ingar hafa líka samúð með Abes-
siníu. En hvað hefir verið gert?
Það hefir verið haldið áfram að
lána Itölum saltfisk, svo ísland á
rni hálfa aðra milljón króna inni
hjá Italíu. Það hafa verið sendir
fulltrúar frá íslenzku ríkisstjóm-
inni til Italíu og viðskiptasamn-
ingar undirritaðir.
Er það svona, sem fátæk, vam-
arlaus bjóð sýnir annari samúð
sína, þegar á hana er ráðizt? Er
það svona sem við íslendingar
viljum láta aðrar þjóðir breyta,
ef t. d. þýzki Hitlerfasisminn
niðist eins á okkur og Mussolini á
Abessiníuþjóðinni ?
Við kommúnistar íslands lýsum
andstyggð okkar á þessu athæfi.
Við höfum hvað eftir annað
brennimerkt það í blaði voru. En
engir flokkar, sem kalla sig elsk-
endur lýðræðis og friðar, hafa
tekið undir.
En það er íslenzku alþýðunnar
að dæma.
Iiaiiii penar"
Ritið, sem allir tala um,
og allir þurfa að eiga.
Skrifið til
Bókaverzlun
Laugaveg 38
Reykjavik
Börn og konur Abessiníumanna eru kvalin ti! bana með eiturgasi
ítala.