a"dvari Jón Baldvinsson 9 hafi gert það óbeinlínis. Þeir lustu ekki upp neinu ópi fyrir výðnum og notuðu ekki vígorð sömu tegundar sem það, er Bolsevikkar í Rússlandi sigruðu með, en það var: Brauð °g friður". Jafnaðarstefnan var þá borin fram hér fyrst og fremst sem hugsjónastefna. Háleitar hugsjónir voru klædd- ar í hversdagsbúning stefnuskráa og flokksyfirlýsinga, enda dró Alþýðuflokkurinn, en því nafni nefndu stofnendur Alþýðusambandsins hina pólitísku starfsemi þess, að sér hugsjónamenn úr öllum stéttum, og í byrjun raunar eigi síður slika menn en sjálft verkafólkið. Þetta hafði mikla Þýðingu fyrir flokkinn í framtíðinni. Þannig varð það, að íramtíðar foringjaefni flokksins völdust jöfnum höndum úr hópi verkamanna, iðnaðarmanna, kennara og skólamanna og l'aunar ýmsum fleiri atvinnustéttum. Þetta er nær því eins- dæmi um sósíalistiskan verklýðsflokk. Það hefir yfirleitt háð Pólitískum verklýðsflokkum erlendis, sem hyllt hafa lýð- ræðisjafnaðarstefnu, að foringjarnir voru nær alltaf gamlir °g reyndir menn úr kaupstreitum verklýðsfélaganna; traustir menn, sem skorti þó oft hæfileikann til þess að gefa barátt- Unni þann hugsjónablæ, sem meira en nokkuð annað laðar að fylgismenn, sem fylkja sér undir fánana af hugsjóna- ástæðum einum saman. Alþýðuflokkurinn líktist ekki bræðraflokkum sínum í nálægum löndum um það eitt, að hann dró fljótt að sér óvenju mikið af hugsjónamönnum úr öllum stéttum mann- íélagsins, heldur eigi siður i því, að sjálfkjörinn foringi flokks, sem þannig var skipaður, varð maður, sem hafði allan aldur sinn unnið sem verkamaður, að visu iðnlærður, en engrar skólamenntunar notið. Samkvæmt aðstöðu sinni °g lífsstarfi hefði Jón Baldvinsson átt að verða sams konar Pólitískur leiðtogi verkalýðsins eins og svo margir leiðtogar i bræðraflokkunum erlendis, sem hafði verið skipað á svip- aðan bekk í lífinu. Hvers vegna svo fór ekki um Jón, hvers vegna þessi óskólagengni bóndasonur, sem til 35 ára aldurs hafði eigi gegnt öðrum mikilvægari störfum en iðn þeirri, er hann lærði í æsku, varð einn farsælasti, víðsýnasti og