10 Sigurður Jónasson andvaW áhrifaríkasti pólitískur leiðtogi á íslandi í rúmlega 20 ar, og hverju hann fékk áorkað, væri út af fyrir sig merkilegt rannsóknarefni í langri ritgerð. Hér verða aðeins tök á að reyna að skýra það í fáum, ófullkomnum dráttum. IV. Jón Baldvinsson var fæddur 20. desember 1882 á Strand- seljum í Ögursveit. Foreldrar hans voru Baldvin Jónsson og Halldóra Sigurðardóttir, er bjuggu á Strandseljum og annars staðar við Isafjarðardjúp. Þau voru Djúpmenn að sett og höfðu, að því er frú Theódóra Thoroddsen segir, til brunns að bera í ríkum mæli það drenglyndi og skapfestu, sem einkenndi fjölda Djúpmanna á þeim árum". Bóndinn á Strandseljum stundaði sjómennsku, jafnframt búskapn- um, eins og þá var títt um bændur við ísafjarðardjúp. Kynnt- ist Jón þvi þegar í æsku öllum störfum alþýðu til lands og sjávar. Fékk hann þannig staðgóða undirstöðu að þekkingu á högum alþýðu manna. Jón þurfti því aldrei, eftir að hann var orðinn stjórnmálamaður, að hafa neina milliliði milh sín og alþýðumannanna. Hann var einn af þeim, þekkti kjor þeirra og vissi, hvern veg þeir hugsuðu. Þetta fann alþýðu- fólkið líka og hafði því óbifanlegt traust á Jóni Baldvins- syni sem sínum manni. Heimilisbragurinn hjá foreldrum Jóns hefir, samkvaernt vitnisburði frú Theódóru, verið framúrskarandi góður. J°n var alla ævi mikill gleðimaður og léttur í lund og hefii' sjálfsagt notið þar að glaðværðar á heimili í æsku. Yngn bróðir hans segir sögu af þeim bræðrum, sem bendir til, að hér sé rétt til getið. Þegar þeir voru ungir drengir, var þeim leyft að hirða fisk, sem eftir varð innan um grjótio í vörinni, þegar aðgerð var lokið að kveldi, og eiga andvirði hans. Þannig söfnuðust þeim bræðrum átta krónur yfir haust- vertíð eina og keyptu þeir sér, að ráði Jóns, harmóniku fynr peningana. Jón lærði strax að spila á harmónikuna og varð hún þeim bræðrum og heimilisfólkinu til mikillar skemmt- unar.