andvari ,Ión Baldvinsson 11 Skólamenntun, umfrara barnafræðslu, fékk Jón enga um ævina. Hann dvaldi stuttan tíma við nám hjá séra Sig- Urði Stefánssyni í Vigur, skömmu eftir ferminguna. Séra Sigurði fannst mikið til um, hve greindur og námfús Jón var, og var hann því, að áeggjan séra Sigurðar, ráðinn til Skúla Thoroddsens til prentnáms í prentsmiðju Þjóðviljans " ísafirði, tæpra fimmtán ára gamall. Síðan dvaldi Jón í rum 8 ár á heimili Skúla Thoroddsens, bæði á Isafirði og Bessastöðum, unz hann réðst prentari hjá prentsmiðjunni Gutenberg í Reykjavík, skömmu eftir að hún hafði tekið W starfa, en það var í ársbyrjun 1905. Dvöl Jóns á heimili Skúla Thoroddsens hlaut að hafa mikil ahrif á framtíð hans. Hinn námfúsi sveinn notaði marga stund utan ákveðins vinnutíma til þess að afla sér bóklegrar ^ienntunar. Buðust honum þarna ýmis tækifæri, sem hann notaði vel. Á heimili Skúla voru jafnan heimiliskennarar. Völdust oftast til kennslunnar námsmenn, sem langt voru komnir í skóla, og var því venjulega um miklu betur lærða kennara að ræða þar en barnakennarar voru þá yfirleitt. Danska tungu nam Jón af bókum einum, tilsagnarlaust, en annars mun hann hafa notfært sér tilsögn heimiliskennar- anna að ýmsu leyti. Hvað menntun Jóns viðvíkur að öðru leyti, verður að hafa í huga, að hann starfaði í 21 ár við Prentiðn, en það er kunnugt, að prentarar eru bezt mennt- aðir allra iðnlærðra manna á íslandi. Prentarastéttin hefir °rð fyrir það um allan heim að skara fram úr öðrum iðn- aðarstéttum um menntun, enda hafa margir bezt menntuðu foringjar lýðsins komið úr þeirri stétt. Þess má geta sem daernis um atorkusemi Jóns við að afla sér menntunar, að öann lærði enska tungu eftir að hann var kominn á efri ár. Auk þeirrar menntunar, sem Jón aflaði sér á þessu á- gætisheimili, hlaut hann að verða fyrir mjög margvíslegum °g sterkum áhrifum þar. Hjá því gat varla farið, að ungur maður, sem var jafn lengi undir handarjaðri Skúla Thoroddsens og fékkst við að prenta Þjóðviljann, hlyti að