18 Sigurður Jónasson andvabi ríkisstjórnar milli Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins. Alþýðuflokkurinn fékk einn ráðherra af þremur í hinni nyju ríkisstjórn, en jafnframt var lagður undir ráðherra flokks- ins meira en þriðjungur mála þeirra, er ríkisstjórnin fer með. Þessi skipan hélzt fram á veturinn 1938. En þá lagði ráðherra flokksins niður starf sitt í ríkisstjórninni. Jón Baldvinsson andaðist 17. marz 1938. Hann var fyrsti forseti Alþýðuflokksins og gengdi því starfi í meira en 21 ár. Var það tilviljun ein, að þátttöku flokksins í rikisstjórn, sem studdist við þingmeirihluta samkæmt venjulegum þing" ræðisreglum, lauk sömu nóttina sem hann féll frá? VI. Jón var stefnufastur, eins og hann átti skaplyndi til. Hann fylgdi stefnu lýðræðisjafnaðarmanna og hvikaði ekki fra henni nokkru sinni þau 20 ár, sem hann tók virkan þátt i stjórnmálum. Það vantaði ekki, að aðrar stefnur kæuu fram í Alþýðuflokknum. Kommúnisminn í öllum mynduin sínum átti fylgismenn í flokknum á ýmsum timum. Þa vóru ýmsir, sem fara vildu einhvers konar milliveg miln kommúnisma og lýðræðisjafnaðarstefnu. Fyrir sumum þess- um stefnum og stefnuafbrigðum, einkum þó kommúnism- anum, var barizt af miklu afli innan flokksins. Svo fór og að lokum, að þeir, sem aðhylltust kommúnisma, klofnuðu út úr flokknum og mynduðu Kommúnistaflokk íslands 1930, en 1938 klofnaði enn nokkur hluti út úr AlþýðU" flokknum. Það voru fylgjendur þeirrar stefnu að mynda skyldi sameiginlegan flokk alþýðu úr Alþýðuflokknum og Kommúnistaflokknum, svo nefndan Sameiningarflokk al- þýðu, Sósíalistaflokkinn. Fræg eru orð Jóns á fundi verka- mannafélagsins Dagsbrún 13. febrúar 1938: Eðli verklýðshreyfingarinnar er ekki skyndiupphlaup. hávaðafundir og æfintýri, heldur markvíst, sleitulaust strit fyrir málefnunum sjálfum. íslenzkt fólk er frábitið hugsun- arhætti kommúnismans og hann sigrar aldrei hér á landi fyrir atbeina íslendinga. Það er hið hættulegasta æfintyn