. 20 Jón Baldvinsson andvaM að hafa áhuga á öllum þjóðmálum og þreytast aldrei á að rökræða þau eða vinna að framkvæmd þeirra. Marg- háttuð barátta Jóns hafði þroskað meðfædda hæfileika hans og gert úr honum stórbrotinn stjórnmálamann. Vanheilsa síðustu ára ævi hans, en hún mun að mestu hafa stafað af sliti og ofþreytu, varð þess valdandi, að íslenzka þjóðin fékk ekki notið hans svo sem mátt hefði verða, ef heilsan hefði ekki bilað. Þá væri vel, ef Island ætti jafnan marga slíka forustumenn.