22 Bjarni Benediktsson andVARI haldizt jafnríkur um þau réltindi, sem enn hafa verið óheinit í hendur þjóðarinnar. Það er nauðsynlegt, að menn geri sér ljóst, að þetta tvenns konar viðhorf er ekki nýtt, heldur hefir haldizt frá því a° Islendingar hófu fyrst sjálfstæðisbaráttu sína. Því að eins geta menn metið rétt þá vantrú, sem hjá sumum hefir hin síðari ár komið fram á því, að íslendingar verði þess megnugir, að taka einir alger umráð yfir öllum málum sínum, að þeir geri sér ljóst, að sams konar vantrú á getu landsmanna hefir áður komið fram um allar þær réttarbætur, sem þegar eru fengnar og nú þykja sjálfsagðar. En þótt óttinn um getuleysi landsmanna sé ekki nýr, Þa er auðvitað ekki fyrir það að synja, að þó að hið ótrúlega hafi blessazt fram að þessu, þá sé engan veginn víst, að syo verði einnig hér eftir, einkum ef öllum sértengslum við hiö gamla yfirráðaríki verður slitið. Það er þvi alveg víst, að Þ° að sagan sjálf virðist hafa markað íslendingum alveg hik- laust þá leið, að þeir ættu að taka fullt sjálfstæði, þegar er þeir máttu, og þótt Alþingi og ríkisstjórn hafi marglýst yfir> að þessi væri ásetningur þeirra, þá mundi alger uppsóg11 sambandslaganna eftir árið 1943 engan veginn hafa orðið ágreiningslaus, ef ekkert sérstakt hefði í skorizt. En nú hafa þeir atburðir orðið, sem hljóta að eyða öllum ágreiningi í þessu efni. Á síðari árum hefir því einkum verið haldið fram til styrktar sambandinu við Dani, að ÞeU veittu oss mikið öryggi gegn því, að aðrar þjóðir, oS siður vinveittar og þeim ágengari, tækju landið undir si0- Öðrum, sem að vísu hefir verið varnarleysi landsins jm»" Ijóst og hinum, hefir aftur á móti ekki skilizt styrkurin af vernd Dana. Þeir hafa munað, í hvílíka hættu landsnienn komust í Napoleonsstyrjöldunum, vegna þátttöku Dana þeim. En þá hlífðu Englendingar landinu við hernaðaraO- gerðum og birgðu það um skeið upp að nauðsynjum, Þ° a það tilheyrði Þá óvinaríki þeirra og því hefði frekar mátt Du- ast við af Þeim fjandskap en slíku drenglyndi, sem Þeir synn þá. Mönnum hefir einnig verið kunnugt um Þa frásog i