aNdvari Sjálfstæði Islands og atburðirnir vorið 1940 25 Vald hans hefir farið, þegar mikið hefir legið við. En 9. apríl, þegar mest reið á, að beinu sambandi konungs og ráð- herra væri haldið, slitnaði það. Þá komust meginherir tveggja niestu hernaðaraðilja, sem sagan greinir, á milli íslendinga °g konungs þeirra. Meðan svo stendur, getur vitanlega ekki att sér stað sú samvinna, sem eftir stjórnarskránni er nauð- synleg milli konungs og ráðherra. I íslenzkum lögum eru ekki fyrirmæli um, hvernig að skuli fara, þegar svona stendur á. Mælt er fyrir um það, hvernig fara skuli, ef konungur getur hvorki gegnt konung- dsemi í Danmörku né á íslandi. Að hinu er alls ekki vikið, "vernig að skuli fara, ef honum er einungis ókleift að fara nieð vald sitt hér. í íslenzku lagadeildinni hefir ætíð verið kennt, að ef konungur vanrækti stjórnarstörf á íslandi, þá yrði ráðuneyti þess að fara með konungsvald, unz Alþingi gerði aðra skipan. Aldrei hefir verið efazt um, að svo bæri H§ fara að um þetta ólögákveðna tilfelli; en það, að kon- uHgi sé ókleift að fara með valdið, er þessu alveg hliðstætt, °g sjálfsagt að láta hið sama gilda um hvort tveggja. Rikis- Valdið kemur frá þjóðinni. Alþingi er fulltrúi hennar og tess vegna bar þvi að segja til um það, með hverjum hætti skyldi með konungsvaldið farið, þegar hinn rétti aðili gat ^igi beitt því. Hitt nær engri átt, sem flogið hefir fyrir, að Ur því að konungur gat eigi farið með vald sitt, þá hefði ^anska ríkisráðið átt að taka við þvi. Það er að vísu rétt, að danska ríkisráðið á stundum að fara með konungsvald, ef konungur getur í hvorugu landinu beitt valdi sínu. En Pað á aldrei að fara með konungsvald, ef ómöguleikinn tek- Ur einungis til íslands, enda alveg Ijóst, að nú var danska rikisráðinu engu fremur kleift en konungi að fara með vald ftans hér á landi. Alþingi hafði þess vegna ekki einungis heimild tjl að ráð- stafa meðferð konungsvaldins, heldur bar því til þess stjórn- skipuleg skylda. Með þessu var ekki framið stjórnlagarof, neldur þvert á móti stjórnskipun ríkisins haldið uppi á hætt- unnar stund. En í ályktuninni má ekki telja felast meira en