26 Bjarni Benediktsson andVABI hún sjálf segir. Hún afnemur ekki konungdæmi á íslandi og sviptir konung ekki tign sinni. Island er eftir sem áður konungsríki, og hinn rétti konungur tekur aftur við völd- um, þegar Alþingi telur skilyrði vera fyrir höndum til þess, að svo megi verða. Síðari ályktunin, sem Alþingi gerði aðfaranótt hins 10. apríl, er svo hljóðandi: Vegna þess ástands, er nú henr skapazt, getur Danmörk ekki rækt umboð til meðferðar utan- ríkismála íslands samkvæmt 7. gr. dansk-íslenzkra sambands- laga, né landhelgisgæzlu samkvæmt 8. gr. téðra laga, og lýsir Alþingi þess vegna yfir því, að ísland tekur að svo stöddu meðferð mála þessara að öllu leyti í sínar hendur. Með sama hætti sem konungi er ókleift að fara með vajd sitt hér á landi, er dönskum stjórnarvöldum ókleift að rækja umboð til meðferðar utanríkismála íslands eða landhelgis- gæzlu. Um landhelgisgæzluna stendur að þvi leyti sérstaklega a, að í 8. gr. sambandslaganna er íslandi fengin heimild til ao taka hana að öllu leyti í sínar hendur, hvenær sem því hzt. Þurftu því engin sérstök atvik að vera fyrir hendi, til ÞesS að taka hennar væri leyfileg. Eins og að er vikið í ályktun- inni, voru samt ríkar ástæður fyrir henni, þar sem dönskuin gæzluskipum var vitanlega ófært hingað til lands og danski flotinn auk þess háður valdi annars hernaðaraðiljans oa þess vegna ósamrímanlegt hlutleysi Islands að þola, að hann færi áfram með landhelgisgæzlu hér. Islandi er að vísu ekki veitt nein heimild í sambandslog- unum til einhliða afturköllunar umboðsins til meðerðar ut- anríkismála á meðan sambandslögin yfirleitt gilda. En í°T~ sendurnar fyrir umboði Danmerkur voru brostnar. DanniorK hefir samkvæmt sambandslögunum enga sjálfstæða heinnld til að taka ákvarðanir um íslenzk utanríkismál, þó að hun að vísu fari með þau. Ákvörðunarvaldið um hvert einasta úrlausnarefni er í höndum íslenzkra stjórnvalda, og úr Því að þeim er ómögulegt að ná til danskra stjórnvalda og segj' þeim, hverjar ákvarðanir eru teknar i íslenzkum utanríkis-