andvari Sjálfstæði íslands og atburðirnir vorið 1940 27 málum, er ljóst, að Danmörk getur ekki, meðan svo stendur, farið með utanríkismál íslands. Þar sem Alþingi hefir tekið þessa ákvörðun, er eðlilegast, að það segi einnig til, hvenær forsendur hennar séu niður fallnar, svo að til fyrra ástands skuli hverfa á ný. I ályktun- inni segir raunar, að Island taki þessi mál að öllu leyti í sinar hendur, en með því er einungis átt við1, að ísland hefir áður farið með þessi mál að nokkru en Danmörk að nokkru, en nú er afskiptum Danmerkur lokið i bili. Hins vegar er með þessu alls ekki átt við fullnaðarráðstöfun þessara mála, sbr. orðalagið að svo stöddu". Að öðru leyti en þessu er gert ráð fyrir, að sambandslögin haldi gildi sínu. Tvímælalaust er, að ályktanirnar 10. apríl voru nauðsyn- iegar, og þá ekki síður, að þær voru heimilar, bæði sam- kvæmt íslenzkum stjórnskipunarrétti og alþjóðalögum. Bæði konungur og dönsk stjórnvöld hafa eftir á viðurkennt, að Qér hafi verið rétt að farið, en frá þessum aðiljum hefði helzt verið mótmæla að vænta. Þá hafa og a. m. k. tvö stór- veldi, Bretland og Bandaríki Norður-Ameríku, viðurkennt hina nýju réttarstöðu landsins. Um afstöðu sumra annarra stórvelda er því miður öllu meiri óvissa, en mótmæli hafa Gvergi komið fram. Innanlands hafa þó heyrzt raddir um, að enn róttækari ráðstafanir hefði átt að gera, annað hvort þegar í stað eða a- »x. k. nær strax. Skal eigi um það efazt, að nokkur rök hefði mátt færa fyrir því að fara svo að. En gagnrökin hljóta a6 verða þyngri á metunum. Má þar fyrst og fremst benda a> að þar sem Islendingar eru varnarlausir og vopnlaus þjóð, Verða þeir umfram allt að gæta vel þeirrar einu varnar, sem beir hafa, en það er að ganga hvergi á rétt annarra og styðja aUar gerðir sínar við ströngustu réttarákvæði. Svo var gert 1 Þeim ályktunum, sem samþykktar voru, en frekari aðgerðir hefðu orðið umdeilanlegar, þó að styðja hefði mátt þær við nokkur rök. Aðrar ástæður, sem einnig eru veigamiklar, hnigu 0g að sömu niðurstöðu, en þar sem sú, er nefnd var, er ærin nóg, skal þetta mál eigi rakið frekar að sinni. i