andvarf Sjálfstæði íslands og atburðirnir vorið 1940 33 höfðum lengi haft ráðagerðir um að afnema síðustu leifar ei'lends valds á tilteknu ári. Atburðirnir knúðu oss til að Sera það fyrr en ætlað hafði verið, en áður en varði voru a oss lagðar nýjar viðjar. Þrátt fyrir það eiguin vér að halda sömu stefnu sem akveðin hafði verið. Vér verðum að treysta því, að hinar nýju hörnlur á sjálfstæði voru standi einungis skamma stund. Ef svo skyldi fara, að hinum ægilega hildarleik lyki bráð- lega og unnt væri á ný að ná eðlilegu sambandi við konung vorn 0g sambandsríki, þá mundu aðgerðirnar 10. apríl verða felldar úr gildi, nema samkomulag næðist um að halda Þeim áfram. En þótt þær féllu niður, þá mundi það einungis verða um stundarsakir. Allir Islendingar mundu þá verða sarnmála um að nota fyrst endurskoðunarákvæði sambands- taganna í ársbyrjun 1941 og síðan uppsagnarákvæðið strax °g heimild er til þess, eftir árslok 1943. Til þessa mundi þó sennilega eigi koma. Dönum getur eigi fremur en oss dulizt, a6 sagan hefir kveðið upp sinn dóm, og að bezt er í vináttu að jarðsetja það, sem þegar er dautt. Nú er orðið alveg ótví- rætt, að samfara niðurfalli sambandslaganna mundi konungs- Sambandið einnig rofna, og verða Islendingar því nú þegar a<5 íhuga, hvernig þeir vilja láta koma hinu æðsta valdi fyrir. Vera kann og, að ófriðurinn standi enn um stund, og hana e- t. v. langa. Frá upphafi var gert ráð fyrir því, að sú skipun, sem var á gerð 10. apríl, væri einungis til bráðabirgða. Verð- ur og ekki á móti því mælt, að ef það ástand, sem nú er, helzt langa hríð, eru forsendur sambandslaganna fallnar brott, og geta Islendingar þá ekki lengur verið bundnir af Þeim. Einkanlega lægi nærri að álykta á þessa leið, ef ekki v3eri unnt að byrja á samningum um endurskoðun á sam- 0andslögunum á árinu 1941, þó að íslendingar gerðu kröfu um það skv. 18. gr. sambandslaganna. Ef þau atvik yrðu fyrir hendi, sem tvímælalaust sýndu, að íslendingar væru ekki framar bundnir af sambandslög- Ununi, mundi eðlilegast, að Alþingi og handhafi konungs- VaWs gæfu yfirlýsingu þess efnis, og síðan yrði þjóðarat- 3