andvari Hin nýja bókaútgáfa 39 'ivatti þessa menn til að senda Alþingi áskorun um að end- urreisa sjóðinn. Þetta var gert. Alþingi tók málinu vel og akvað, að sjóðnum skyldu tryggðar 50 þús. kr. tekjur á ari. Ef áfengissektir ná ekki þessari upphæð, bætir ríkis- sjóður við því, sem á vantar, af gróða áfengisverzlunar. Jafn- framt var hin sérstaka útgáfunefnd felld niður, en Mennta- málaráð skyldi sjá um útgáfustarfsemina, eins og aðrar fi'anikvæmdir. Þegar þessi lagabreyting var gerð, voru í Menntamálaráði finim menn og eiga þar nú sæti, þeir Árni Pálsson prófessor, Barði Guðmundsson þjóðskjalavörður, dr. Guðmundur Finn- bogason landsbókavörður, Pálmi Hannesson rektor og Jónas Jónsson frá Hriflu. Þessi nefnd hefir staðið fyrir endur- skipulagningu bókaútgáfu menningarsjóðs. Menntamálaráð fekk sér fyrst til aðstoðar Steingrím Guðmundsson forstjóra í Gutenberg, og er hann ráðunautur °g fjárhaldsmaður Menntamálaráðs í allri útgáfustarfsemi tess. Hann tók við öllum bókaleifum fyrri útgáfunnar og nefir leitazt við að selja þær upp í skuldina við Gutenberg. Hefir það tekizt framar öllum vonum. Er gert ráð fyrir, að a nokkrum árum muni takast að endurgreiða alla eða mest- aUa prentsmiðjuskuldina með því, sem inn kemur á þennan hátt fyrir gamlar bækur. Menntamálaráð sá, að það gat ekki farið sömu leið og fyrir- rennarar þess, sem hófu útgáfustarfsemi eftir 1928. í þess stað ákvað nefndin að taka til fyrirmyndar útgáfustarfsemi Odds Björnssonar frá því um aldamótin, er hann gaf út ..Bókasafn alþvðu". Nú skyldi safna föstum áskrifendum, og §efa út ákveðna tölu góðra bóka árlega fyrir tiltekið verð. Með því mátti spara hinn mikla og óhjákvæmilega kostnað Vlð útsölu og dreifingu bókanna. Auk þess varð útgáfu- stjórnin að fylgja föstu, ákveðnu skipulagi um útgáfuna, Val bókanna, stærð og frágang. Útgáfustjórnin fékk þar með núsbóndavald um bókavalið, í stað þess að hún var áður háð Vllja höfundanna, sem komu með þau handrit, sem þeim nentaði sjálfum að semja og láta gefa út.