andvari Hin nýja bókaútgáfa 43 °g Jónas Jónsson, komu á aðalfund Þjóðvinafélagsins með tillögu í þessa átt. En henni var ekki vel tekið. Var málinu frestað, sett í það nefnd og hafðir tveir umræðufundir. Urðu harðar deilur á báðum fundunum. Kom í ljós, að til voru ekki fáir menn í þinginu, sem voru því mjög mótfallnir að efla Þjóðvinafélagið með fjármunum Menntamálaráðs. Fremstir 1 þessum flokki voru þingmenn Kommúnistaflokksins. Þeir höfðu um nokkur ár haft allmikla útgáfustarfsemi til fram- uráttar flokki sínum. Mátti heita, að önnur hver bók, er þeir gáfu út, væri áróður fyrir flokk þeirra og stjórnarform Rússa, en þess á milli nokkrar bækur að mestu eða öUu Wutlausar um landsmál. í skjóli þessara hlutlausu bóka 1-eyndu þeir að koma áróðursritum sínum inn á heimili hjá íólki, sem ekki uggði að sér, að hér var um að ræða sérstaka sefjun þjóðarandans með framandi og sundrandi áhrifum. Kommúnistar þóttust sjá ekki alllitla hættu fyrir útgáfu- fyrirtæki sín, ef Menntamálaráði heppnaðist sú nýbreytni, sern hér hefir verið sagt frá. Þá var mótstaða frá mönnum 1 öðrum flokkum, þar sem um var að ræða sérhagsmuni raanna, sem vinna að þýðingum eða bókasölu. Loks komu tylgis við andstæðinga Menntamálaráðs einþykkir menn °g duttlungafullir, sem áttu erfitt með að sætta sig við ný- ttiæli frá öðrum mönnum. Til þess að forðast deilur og flokkadrætti um málið, var akveðið að láta fyrirtækin halda áfram hvort undir sínu nafni, en fresta að tengja þau saman, með því að sömu menn væru í meiri hluta stjórnar beggja fyrirtækjanna. Pálmi Hannesson var í báðum stjórnunum og formaður Þjóðvinafé- 'élagsins. Hann baðst undan endurkosningu í Þjóðvinafé- Jaginu og mæltist til, að formaður Menntamálaráðs, Jónas Jónsson, yrði kosinn í sinn stað í stjórn Þjóðvinafélagsins, í Pví skyni að tengja bæði fyrirtækin saman svo náið sem unnt Var. úr því ekki tækist skipulagsleg samvinna. Kommún- ^stinn og bandamönnum þeirra líkaði þetta stórilla og gerðu sanitök við menn úr öðrum flokkum, sem voru lausir á velli 1 andstöðu við ofbeldisstefnu kommúnista. Varð þeim svo