ANDvari Hin nýja bókaútgáfa 45 forna stíl Snorra Sturlusonar og höfunda Islendingasagna. Hann lýsir fólkinu eins og hafi hann stöðugt haft það fyrir augum sér og heyrt það tala. Sumir munu hafa gagnrýnt valið á þessari bók. Fæstir, sem það gera, hafa haft nokkra hugmynd um, hversu þessi ævisaga er þýðingarmikil í bók- nienntum hinna fjölmennu menningarþjóða. Enn síður hafa þeir leitt hugann að því, að Viktoría mun áreiðanlega verða hl fyrirmyndar íslenzkum ævisöguhöfundum og má það yerða til framfara. Það má segja, að hin langlífa drottn- lng hafi ekki verið yfirburða-skörungur um skapgerð. En Saga hennar er bæði saga Englands í tvo mannsaldra og gefur auk þess ljósa hugmynd um tímabil, sem nútímakyn- slóðin þekkir ekki. Það var tími hinnar frjálsu atvinnu- °g iðnþróunar, sem studdist við langan og farsælan heims- frið. Sú bók, sem næst var ákveðin, var skáldsaga eftir norska skáldið Hamsun, i þýðingu Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðar- nesi. Menntamálaráð lagði mikla stund á að fá samvinnu Vlð þennan þýðanda, sem er talinn í þeirri grein einna tremstur sinna samtíðarmanna. Að sumu leyti eru skiptar skoðanir um Hamsun, einkum sem mann. En hann er heims- llægt skáld og Nobelsverðlaunamaður. Menntamálaráð er Peirrar skoðunar, að það eigi að gefa félagsmönnum útgáf- Unnar kost á einni skáldsögu árlega, eftir frægustu og mestu skáld heimsins, í þýðingum, sem eru samboðnar íslenzku ^ali og menningu. Það er mjög vafasamt, að þær bækur eigi ætíð að vera frá allra síðustu árum. Síðan á tíma hinn- ar fyrri heimsstyrjaldar hefir sönn list átt erfitt uppdráttar 1 heiminum. En sem betur fer er af miklu að taka fyrir Pví» frá því áður en hnignunin byrjaði með valdatöku kom- ""ínista í Rússlandi 1917. Jóhann læknir Sæmundsson ritar nú í sumar heilsufræði fyrir Menntamálaráð. Vildi nefndin byrja náttúrufræðiút- gafu sína meg þvi að taka það et.ni) sem er nendi næst, en þfið er líkami mannsins. Höfundurinn er nú landskunnur rnaður, ekki aðeins sem læknir, heldur sem snjall fyrirlestra-