ANDVAm Hin nýja bókaútgáfa 49 goð um framgang þessa fyrirtækis. Hinn mikli kaupenda- fjöldi sýnir hug þjóðarinnar. Menn vilja fá miklar bækur °g góðar bækur og eiga þær á heimilum sínum. Vafalaust verða einhver mistök um svo margþætt fyrirtæki, auk þess sem vonlaust má telja að gera svo öllum líki. Til þess getur enginn ætlazt. En ef rétt er stefnt í aðalatriðum og tekið "Hit til reynslu og árekstra, þarf ekki að kvíða framtíð þess- arar útgáfustarfsemi. Borgarar landsins eru búnir að lýsa yfir eindregnu fylgi við tilgang hennar. _ Utgáfustjórnin hefir fyrst og fremst aðalstuðning sinn í hinni miklu sölu. Hún treystir auk þess framvegis á þegn- skap hinna mörgu útsölumana, að þeir dreifi bókum og mnheimti andvirði þeirra fyrir miklu lægri þóknun heldur en annars er títt að greiða hér á landi. Tilgangurinn er að skapa íslenzkt bókasafn á hverju heimili á landinu. Það er kugsjóná- og menningarmál. Og þessu takmarki verður ekki nað, nema unnt verði að halda hinni bjartsýnu samvinnu 'jölmargra hjálparmanna um allt land, eins og hún hefir komið fram við áskrifendasöfnunina. Utgáfustjórnin hefir auk þess tillag frá ríkissjóði, og hefir sparað það um nokkur undangengin misseri, til þess að Vera viðbúin hinu mikla átaki. En ef útgáfukostnaður vex stórkostlega meðan stríðið stendur, getur svo farið, að út- gáfan þurfi meiri almennan stuðning frá Alþingi. Og hann ttiun verða veittur, ef rekstur fyrirtækisins er heilbrigður °g allt gert af hálfu kaupenda, umboðsmanna og útgáfu- sVJórnar til að láta fyrirtækið bera sig. Alþingi mun ekki teija eftir ef með þarf að styrkja um stundarsakir útgáfu, Sem allir vita, að er gerð af íslendingum, fyrir íslendinga °g eingöngu kostuð af íslenzku fé. IX. Eitt hið mesta vandamál í sambandi við hina nýju um- íangsmiklu útgáfu er bókbandið. Það hefði þurft að vera j|ægt að binda í snoturt og ódýrt band nokkuð af útgáfu- b°kum þessum þegar frá byrjun. Það gerði Oddur Björnsson 4