54 Hin nýja bókaútgáfa andVAKI En þessi greinagerð mun þó sýna stuðningsmönnum hinnar nýju útgáfu aðalstefnuna í málinu. Tilgangurinn er að skapa heimilisbókasöfn um allt land, þar sem heima eigi skemnit- andi og fræðandi bækur. Þessi útgáfa spillir ekki fyrir frurn- sömdum verkum íslenzkra höfunda, eða fyrir útgáfu þeirra. Sljórn Þjóðvinafélagsins og Menntamálaráð leita til ákveo- inna manna um ákveðin verk, þýdd eða frumsamin. Góo skáld munu sennilega leita með úrvalsljóð sín í Andvara, en annars verður þessi útgáfa ekki í vegi forleggjara, af því að verkefni hennar er nýtt og að kalla má algert landnám, utan við verksvið núverándi rithöfunda og útgefenda. En það hlýtur að vera öllum þjóðræknum mönnum gleði- efni, að svo vel hefir verið tekið á móti hinni nýju útgáfu- starfsemi. Af því má sjá, að þjóðin vill eiga og lesa bækur. Hin nýja útgáfa verður brautryðjandi í því að opna heimihn að nýju fyrir góðum bókum. Síðan verður það hlutverk einkafyrirtækjanna og einstakra rithöfunda að bæta við a bókamarkaðinn þeim ritverkum, sem þjóðin verður hrifin at og bætir við í hillur hinna vaxandi bókasafna heimilanna.