68 Jóhann Sæmundsson andvabi meti hrátt, eða sjóða það í vel luktum ílátum og hræra sem minnst í. B-bætiefni. B-bætiefnin eru í rauninni mörg, en sá er kosturinn, að þau fara jafnan saman í fæðunni. Helztu B- bætiefnagjafar eru lifur og ýmsar korntegundir, en því ao- eins, að hýðið og þá kímið sé malað með. Afhýdd hrísgrjón eru bætiefnasnauð. Heilhveiti, gróft rúgmjöl, bygg, hafrar og bókhveiti eru hins vegar auðug að Bi-bætiefni. Aðrir B- bætiefnagjafar eru grænar baunir, kartöflur, gulrætur, spínat, salat, eggjarauða, mjólk, hrogn, sild, lax, lifur og önnur inn- ýfli, magurt spendýra- og fuglakjöt. Mest er þó af B-bæti- efnum í geri (ölgeri). B-bætiefnin leysast upp í vatni og ætti því að sjóða matinn í sem minnstu vatni og hagnýta soðið, svo að bætiefnin fari ekki til spillis. Þau þola suðu sæmilega. Bi þó lakar en hin. C-bætiefni. C-bætiefni þolir illa loftáhrif og suðu, ef loft kemst að því samtímis. Enda þótt það virðist hverfa úr fæð- unni kaldri fyrir loftáhrifin ein, er talið, að líkaminn geti gert sér þess full not og afturkallað breytinguna, er súrefm loftsins hefir valdið á því. En hafi það verið hitað upp i eða upp undir suðuhita, eyðileggst það, svo fremi loft kemst að því samtímis. Þó þolir það suðu allvel í sumum grænmetisteg- undum, sennilega vegna þess, að loft kemst miður vel ao því, eða þá að nokkur sýra er í grænmetinu. Má telja þao mikla bót, að grænmeti sé soðið í dálítið sýrðu vatni, því ao siður er þá hætta á, að þetta bætiefni skemmist. Helztu C- bætiefnisgjafar eru ýmsar grænmetistegundir, ávextir og rótarávextir. Má þar einkum nefna grænkál, rósakál, kart- óflur, steinselju, hreðkur, salat, spínat, hnúðkál, gulrætur, krækiber, skarfakál, tómata, sítrónur og appelsínur. Þá ma nefna nýmjólk og undanrennu, sé hún ekki soðin. Ennfreniur eru þurrkaðar, grænar baunir auðugar að C-bætiefni. Seu þær látnar spíra, eykst í þeim C-bætiefnið og getur því hver og einn framleitt C-bætiefni heima hjá sér, enda þótt um hávetur sé, með þessu móti. C-bætiefni leysist upp í vatni og er því jafnan hætta á, að