72 Næringarþörf manna andvabi meginástæðan til neyzlu grænmetis er að fullnægja þörfum likamans fyrir þetta bætiefni. Því miður er geymsla grænmetis allmiklum erfiðleikum bundin vetrarmánuðina. Það var gamall siður hér á landi að geyma krækiber í skyri á vetrum og sömuleiðis var gulrófu- kálið saxað og sett saman við lítt síað skyr og var það nefnt kálsúr. Að því hefir verið vikið hér að framan, að C-bseti- efnið haldist sæmilega, án þess að skemmast, sé það í súru, og C-bætiefnisríkir ávextir, eins og sítrónur og appelsínur, eru jafnan súrir á bragðið. Það má teljast líklegt, að unnt sé að varðveita C-bætiefnið allvel, ef grænmetið, t. d. grænkál og skarfakál, er geyrnt hrátt í skyri á vetrum, og hið sama gildir um krækiber. Bezt mun vera að saxa grænmetið áður og hræra það siðan a- samt safanum, sem úr því kann að renna, saman við lítt síað skyr, en geyma síðan til vetrarins í góðum ílátuni. Einnig er full ástæða til að hirða gulrófnakálið, eins og áð- ur var gert, og geyma það á sama hátt.