84 Jónas Jónsson andvabi Islandi. Skyldu erlendir menn, sem hingað leituðu í því skym, fá Ieyfi þeirra til rannsókna og semja við nefndina uni, hvað þeir mættu rannsaka, og hversu þéir mættu birta skýrslur um athuganir sínar á náttúru landsins. Stjórnmála- flokkarnir þrír völdu í þessa nefnd Ásgeir Þorsteinsson verk- fræðing, Emil Jónsson bæjarstjóra pg Pálma Hannesson rektor. Þeir völdu sér síðan sem framkvæmdarstjóra Stein- þór Sigurðsson magister. Þessir menn höfðu hver um sig fjölbreytta reynslu á að byggja. Ásgeir Þorsteinsson stoð fyrir samtryggingu íslenzkra botnvörpunga og hafði staðio fyrir ýmsum tilraunum á endurbótum á verkun sjávaraf- urða, einkum á þorskalýsi. Emil Jónsson var líka verk- fræðingur og hafði auk þess átt sæti í skipulagsnefnd at- vinnumála. Pálmi Hannesson var fjölmenntaður náttúru- fræðingur og hafði á síðustu árum fylgzt með þeim rann- sóknum innlendra og erlendra manna, sem nokkuð kvað að. Steinþór Sigurðsson hafði stundað náttúrufræði og stærðfræði sem sérnám, en auk þess unnið að landmæling- um Islands með dönskum herforingjum um mörg ár. Hann hafði á þessum ferðum sínum kynnzt landinu betur en flestir aðrir samlandar hans. Sumarið 1939 var fyrsti starfs- tími rannsóknarnefndarinnar. Ófriðarblikan vofði yfir allt sumarið og í byrjun september hófst stórveldastríðið. Þetta sumar komu miklu færri erlendir menn til rannsókna heldur en á undángengnum árum, en nefndin fylgdist með starfi þeirra, eftir því sem kostur var á. Rikisstjórnin fól nefnd- inni þegar frá byrjun ýmsar framkvæmdir vegna aðsteðj- andi ófriðarhættu. Ein af þeim var rannsókn á móvinnslu- skilyrðum og móvinnslu með vinnusparandi vélum. Nefndin lét sumarið 1939 og einkum þó um haustið, eftir að ófriður- inn hófst, gera bráðabirgðaathugun á öllum helztu mómýr- um, sem til eru á landinu. Jafnhliða því fékk nefndin fra Noregi vél til að gera eltimó, og var gerð tilraun með þa vél á Hvammstanga sumarið 1939. Veturinn 193940 voru smíðaðar nokkrar móvinnsluvélar undir eftirliti rannsókn- arnefndarinnar handa einstökum atvinnurekendum og bæj-