andvari Rannsóknarnefnd rikisins 87 kennari á Akureyri vinnur að tveim verkefnum í sumar. Annars vegar að kynna sér þær breytingar, sem orðið hafa a mýragróðri í Flóanum vegna áveitunnar, og áhrifa beitar « afréttarlöndum til fjalla. Setur Steindór í því skyni smá- girðingar á mörgum stöðum á hálendinu, til að sjá mun á gróðri, þar sem friðað er, til samanburðar við hin opnu beitilönd. Verður með þessum hætti hægt að leiðbeina bænd- urn um það, hve mikið má hafa af fé í hverju upprekstrar- landi. Nú virðist uppblástur og eyðilegging af foksandi vofa yfir allmiklu af afréttarlöndum bænda, þar sem of miklu af fé og gripum hefir verið beitt á landið. Trausti Einarsson, sá er endurvakti Geysi, heldur áfram rannsóknum á hverum og laugum. Finnur, sonur Guðmundar Bárðarsonar, hefir í vor gert mikilsverðar athuganir út af fækkun æðarfugls. Með athugunum í mörgum æðarvörpum við Húnaflóa virð- ist Finnur hafa sannað, að veiðibjalla er sá vargur í æðar- varplandi manna, að engin von sé til, að sá atvinnuvegur blómgist, nema veiðibjöllunni verði að mestu leyti útrýmt. Margir fleiri menn eru að verki hjá rannsóknarnefndinni, en þessi dæmi nægja til að sýna, hvert stefnir með störf hennar. Annað dæmi sýnir, hve heppilegt er, að fulltrúarnir í rann- sóknarnefnd eru kosnir af sérstökum aðiljum, þar sem hver liefir sín sérstöku sambönd. Sumarið 1939 fékk Ásgeir Þor- steinsson af tilviljun vitneskju um það, að Vestur-íslend- ingur einn hefði starfað að borun i Drápuhliðarfjalli á Snæ- fellsnesi með bor, sem væri tiltölulega ódýr, en gæti þó verið nytsamur til margra hluta. Vissi hann, að bor þessi mundi falur til kaups með tilheyrandi áhöldum fyrir 56000 kr. Lagði hann til, að rannsóknarnefnd keypti borinn. Ríkis- stjórnin tók því máli vel og lagði fram fé til kaupanna. Ríkið átti áður stóran bor, líkan þeim, sem Reykjavíkur- bær notar á Reykjum. En það kostar nokkur þúsund krón- ur að koma slíkum bor fyrir og grafa eina holu. En með nor þeim, sem Vestur-íslendingurinn seldi, má grafa með handafli, þó að betra sé að hafa til verkléttis lítinn mótor.