90 Rannsóknarnefnd ríkisins andvabi árlega yfirlitsskýrslu í Andvara um allt starf hennar á und- angengnu ári. Með þeim hætti fær þjóðin á hverjum tíma glögga vitnesku um þá merkilegu leit, sem rannsóknar- nefndin á að stýra. Tilgangur þeirrar leitar á að vera að uppgötva meira og meira af gæðum landsins þjóðinni til hags- bóta og kenna landsmönnum að nota á skynsamlegan hátt allar þær auðsuppsprettur, sem landið getur veitt börnum sínum. En auk hins hagnýta í rannsóknunum á náttúru landsins, er það metnaður þjóðarinnar, að allar fræðilegar rannsóknir á eðli ættjarðarinnar verði annað hvort fram- kvæmdar af íslendingum eða gerðar undir þeirra umsjón og húsbóndavaldi. Þegar hinn nafntogaði barón" kom til landsins og þótt- ist fær um að útvega þjóðinni margar milljónir að láni, ef hann mætti leika lausum hala með málmvinnslu úr tilteknu fjalli á Vesturlandi, hafði þessi maður að vísu engin fjárráð og vildi aðeins hafa nafn landsins sem agn í fjárhættuspili sínu erlendis. En vel má vera, að þjóðin eignist með tíð og tima margar milljónir fyrir störf rannsóknarnefndar ríkis- ins. Og þessi nefnd var mynduð og sett til starfa, til þess að íslendingar þyrftu ekki lengur að vera eins konar hús- mennskumenn hjá útlendingum, að því er snerti rannsókn á gildi og gæðum þeirra eigin lands. Þannig geta lítil og ó- merkileg atvik hrundið áleiðis stórum málum og miklum nýjungum. Rannsóknarnefnd ríkisins er eitt af þeim dæm- um, sem sanna þessa staðreynd.