98 Baldur Bjarnason andvari Finnum lítið, og mörg héruð, sem áður voru sænsk, hafa tekið upp finnska tungu. Rússastjórn styrkti mjög baráttu Finna á móti sænsk- unni, því að hún leit svo á, að öruggasta ráðið til að halda Finnlandi væri að eyða þar sænskum áhrifum. En Rússar vissu ekki, hvílíkur lífskraftur bjó í finnsku þjóðinni. I Finnland reis brátt upp finnskumælandi borgarastétt, skip- uð iðnrekendum og stórkaupmönnum, og þessi borgarastétt varð miklu auðugri og harðari í horn að taka en hinar gömlu og hámenntuðu sænsku yfirstéttir. Óhindrað af Rússa- stjórn myndaðist svo í landinu mjög öflug verklýðshreyfing og samvinnuhreyfing. Samhliða þessu döfnuðu vestrænar lýðveldisskoðanir við háskólann í Helsingfors og alþýðu- skólana finnsku. Það var engu Iíkara en að hið litla Finn- land væri að verða hinu stóra Rússlandi ofurefli i menn- ingarlegu tilliti. Finnskir vísindamenn vörpuðu ljóma vest- rænnar hámenningar yfir hið áður óþekkta land. Tónsnill- ingar eins og Merikanto og Sibelius létu tóna þúsundvatna- landsins með skógunum miklu óma í hljómlistarsölum Ev- rópu. Það er sennilegt, að engin smáþjóð í Evrópu hafi tekið slíkum risaframförum í menningarlegu tilliti eins og Finnar á 19. öld, enda óx þjóðarmetnaður Finna svo mjög, að keis- arastjórninni í Pétursborg fór að standa geigur af. í lok 19- aldar hóf keisarastjórnin mikla herferð á móti finnskri menningu og frelsishreyfingu Finna. Skólum var lokað, reynt var að troða rússnesku upp á finnsku þjóðina og svipta finnska þingið öllum ráðum. En Bobrikoff, landstjóri keisarans í Finnlandi, ríkti um aldamótin sem einvaldur væri. En þegar Rússar biðu ósigurinn mikla fyrir Japönum 19041905, losnuðu úr læðingi öll þau byltingaröfl, sem til voru í Rússlandi. Allt komst í uppnám og að lokum hófst borgarastyrjöld. Að vísu tókst keisaranum að friða landið, en á meðan á óeirðunum stóð í Rússlandi, notuðu Finnar tækifærið og rifu sig undan kúgunarvaldi keisarastjórnar- innar. Bobrikoff hafði verið myrtur, þegar fyrstu fregnirn- ar bárust til Finnlands um ófarir Rússa í Asíu. Síðan þving-