andvari Finnland 99 aði finnski verkalýðurinn með allsherjarverkfalli Rússastjórn til þess að gefa landinu frjálsa stjórnarskrá. Landsþingið finnska var nú kosið með almennum kosningarrétti og kon- ur fengu kosningarrétt og kjörgengí til þings. Finnland var fyrsta landið í Evrópu, þar sem konur fengu kosningarrétt. En þegar Rússakeisari hafði barið niður byltinguna í Rúss- landi, voru Finnar kúgaðir að nýju og Finnland innlimað í Rússland. Finis Finnlandiae (endalok Finnlands), kölluðu rússnesku keisaraliðarnir í Dúmunni, þegar það var tilkynnt, að Finnland væri afmáð úr tölu sjálfstæðra ríkja. En margt fer öðruvísi en ætlað er. Nokkrum árum síðar leið rússneska keisaradæmið undir lok, þegar Nikulási II. var steypt af stóli 1917, eftir ósigrana í heimsstyrjöldinni. Lýðveldisstjórnin, sem þá hófst til valda í Rússlandi, ákvað, að Finnland skyldi Verða sjálfstætt lýðveldi innan rússnesku ríkisheildarinnar. Við kosningarnar til finnska þingsins fengu sósíaldemokrat- arnir hreinan meiri hluta og leiðtogi þeirra Tokoi myndaði stjórn. Brátt hófust þó miklar deilur milli hans og borgara- flokkanna, einkum eftir að bolsevikkarnir með Lenin í broddi fylkingar höfðu náð völdum í Rússlandi. Deilur þessar sner- Ust bæði um innan- og utanríkismál, en þó einkum um af- stöðuna til rússnesku ríkisheildarinnar. Eftir nóvemberbylt- inguna í Rússlandi vildu borgaraflokkarnir finnsku slíta öllu sambandi við Rússland, en meiri hluti sósíaldemokrat- anna vildi taka upp sovétstjórn eftir fyrirmynd bolsevikka. En hinir borgaralegu finnsku þjóðernissinnar með Svin- huvud í broddi fylkingar héldu því fram, að ekkert rússneskt stjórnarkerfi ætti við Finnland, gagnvart Finnum væru Hússar aðeins Bobrikoffar og ekkert annað. Deilur þessar Urðu til þess, að Tokoi rauf þingið. En við kosningarnar varð Rússahatrið öllu öðru yfirsterkara og borgaraflokkarnir Unnu algeran meiri hluta, Tokoi varð að fara frá og Svin- huvud tók sæti hans. Meiri hluti sósíaldemokrata undir for- ustu Kuusinen undi ekki þeim málalokum og gerði upp- reisn og nú gaus upp ægileg borgarastyrjöld. Svinhuvud- stjórnin varð að flýja til Vasa og tókst henni með erfiðis-