100 Baldur Bjarnason andvabi munum að koma upp hvítum her í Norður-Finnlandi. Yfir- maður þessa hers var hinn frægi Mannerheim hershöfðingi, en hann er af gamalli sænsk-finnskri aðalsætt og hafði áður verið liðsforingi í rússneska keisarahernum. Hann reynd- ist ágætur herforingi, en þó fór hann fremur halloka fyrir rauða hernum, þangað til Þjóðverjar settu her á land 1 Finnlandi, og hröktu þeir að lokum finnska rauða herinn og hinar rússnesku hjálparsveitir hans út úr Finnlandi. Borgarastyrjöld þessi var einhver hin grimmilegasta, sem sögur fara af, og kostaði tugi þúsunda mannslífa. Var hún ægileg blóðtaka fyrir finnsku þjóðina og skildi eftir opið sár í sál hvers einasta Finnlendings, sár, sem ekki hefir gróið yfir fyrr en á síðustu árum. Finnska þjóðin var í rnörg ár eftir borgararstyrjöldina klofin í tvær fjandsamlegar fylk- ingar. Eftir borgarastyrjöldina varð landið lýðveldi og með stuðningi frjálslynda flokksins og sósíaldemokrata varð Stál- berg forseti. En honum tókst ekki að lægja deilurnar í land- inu. Síðan varð Relander forseti. Hann tilheyrði afturhalds- samasta hluta bændaflokksins. Hann hafði á sínum tínia verið einn af leiðtogum hvitliða og var þvi hataður mjög af sósíaldemokrötum og kommúnistum. Skærurnar í land- inu fóru mjög vaxandi í embættistíð hans og 1930 komu afturhaldsmenn í landinu á fót hreyfingu, sem nefndist Lappohreyfing og átti aðalfylgi sitt meðal stórbænda. Stefndu Lappomenn að því að koma á fasistisku einræði að ítalskri fyrirmynd. Höfuðsókn sinni stefndu þeir að verklýðshreyf- ingunni og tókst þeim að fá kommúnistaflokkinn bannaðan og verklýðsfélögin leyst upp. En sósíaldemokratar héldu velli, þótt mjög væri að þeim þrengt. Svinhuvud gamli varo nú ríkisforseti og mynduð var borgaraleg samsteypustjórn undir forustu finnska íhaldsflokksins, en Svinhuvud var 1 raun réttri nærri einvaldur. í stjórnartíð hans var mjög aga- samt í Finnlandi og viðsjár miklar með mönnum. Einkum skarst oft í odda milli sósíaldemokrata og Lappomanna, sem höfðu stuðning ríkisstjórnar og hers. En jafnframt snerist hin ofsalega finnska þjóðernishreyfing gegn öllu