102 Baldur Bjarnason andvabi brigði í Finnlandi. Alþýðutryggingar eru þar mjög full- komnar. Að vísu hefir alltaf verið lágt kaupgjald í Finn- landi, en hins vegar ódýrt að lifa þar og ýkjulaust mun mega segja, að finnska alþýðan hafi í flestu haft jafn góð kjör og alþýða annarra Norðurlanda. í menningarlegu tilliti eru Finnar með fremstu þjóðum Evrópu, skáldskapur og bókmenntir standa þar enn sem fyrr á háu stigi, og hljóm- listarsalir og sönghallir Helsingfors og Ábo hafa verið með hinum fremstu i sinni röð í allri Evrópu. Á sviði hljóm- listarinnar standa Finnar framar öllum Norðurlandabúum. ómur og niður fossanna' og fljótanna og laufþytur skóg- anna í hinu öldótta og skógi vaxna þúsundvatnalandi hafa haft svo djúp áhrif á sálarlíf finnsku þjóðarinnar, að hún er flestum þjóðum söngelskari. Alþýðumenntun Finna er, eins og kunnugt er, mjög góð. Það mun því óhætt að segja, að Finnland sé að öllu sam- an lögðu eitt af mestu menningarlöndum heimsins, þegar tekið er tillit til smæðar þjóðarinnar. Finnar eru, eins og kunnugt er, fjarskyldir okkur að ætt og uppruna og menn- ing þeirra er sérstök, því hún byggir á alfinnskum grund- velli, þótt hún hafi orðið fyrir sterkum norrænum áhrifum- En Finnland tilheyrir landfræðilega og að náttúrufari skan- dínavisku löndunum og Finnar eru því NorðurlandaþjóS, þrátt fyrir austrænan uppruna. Annars eru Finnar engin Asíu-þjóð í útliti, eins og margir halda. Hinir sænskumæl- andi Finnar eru hreinir Norðurlandamenn, háir, grannir, ljóshærðir og bláeygðir langhöfðar, og sama má segja um marga af hinum eiginlegu Finnum, einkum þá, sem búa vio sjóinn, enda eru þeir vafalaust blandaðir sænsku blóði. En yfirleitt eru Finnar þó ólíkir skandínavisku þjóðunum. Þeir eru oftast stutthöfðar, lágvaxnari og gildari en Norðurlanda- menn. Þeir skiptast í nokkra kynbálka, Tavasta, Savolaksa, Kareli og Norður-Finna. Tavastar eru langfjölmennastir og búa um mestan hluta landsins. Þeir eru oftast háir vexti, en þó lægri en Svíar, þrekvaxnir og herðabreiðir, bláeygoir eða gráeygðir, bjartir á hörund og oft ljóshærðir, en eru