andvabi Finnland 103 breiðleitir stutthöfðar með há kinnbein og hafa því talsvert austrænan svip. Savolaksar líkjast þeim mjög. Karelar eru dökkhærðir, meðalmenn á vöxt, stutthöfðar, breiðleitir og kinnbeinaháir og lítið eitt gulir á hörund. Norður-Finnar eru litlir vexti, enda mjög blandaðir Löppum. Þeir eru frem- ur dökkir yfirlitum og bera dálítið mongólskan svip. Oft eru þeir þó blá- eða gráeygðir, en sjaldnast ljóshærðir. Það niá því yfirleitt segja, að Finnar líkist meira Evrópumönn- Um í útliti en Mongólum. Að vísu bregður mjög oft fyrir niongólskum svip á Finnum, einkum Norður-Finnum. Ber mest á því hjá ungu fólki, en venjulega hverfur það með aldrinum. Það verður því ekki annað sagt en að Finnar séu Evrópumenn, þótt þeir beri nokkurn keim Asíumanna. Pinnar eru hraustir menn og hugrakkir og manna ötulastir við líkamlega vinnu. Þeir eru með beztu íþróttamönnum i heimi og ágætir hermenn. Þjóðareðlið er milt og spaklynt, drjúgt og drengilegt, en þó geta þeir verið manna grimm- astir og harðvítugastir, ef svo ber undir, og þeir hafa oft þurft á þeim eiginleikum að halda, því oft hefir að þeim sorfið. Hver reiknar allt það raunatal, er reyndi lands vors Þjóð, er styrjöld fór um fold og dal og frost og hungur gjörði val'? Hver hefir Finnans metið móð og mælt hans úthellt blóð?" Nú, þegar finnska þjóðin heyr sinn ægilega hildarleik við ofureflið rússneska, mun engin efast um samúð okkar Is- lendinga með finnsku þjóðinni. Við vitum, að finis Finn- landiae getur þýtt finis Islandiae. Ritað í desember 1939.