Andvari - 01.01.1926, Blaðsíða 14
Andvari
1930.
Eg býst við að fleirum en mér sé farið að verða
órótt, er þeir hugsa til ársins 1930 og minnast þess, að
nú er 1926. Það eru ekki nema fjögur ár þangað til
þúsund ára afmæli alþingis og þar með hins íslenzka
ríkis rennur upp. Þúsund ára afmæli löggjafarþings og
ríkis í senn er svo merkilegt og sjálfsagt tilefni hátíða-
halds, að engin þjóð, sem lífsmark leynist með, mundi
láta það ónotað, enda mun það þegjandi samþykt allra
lslendinga, að þá eigi að verða mikil hátíð á landi hér.
En þögnin, sem um þetta mál hefir verið, bendir á, að
menn hafi ekki alment gert sér nægilega ljóst, hve mikið
vandamál slík þjóðhátíð er, hve mikinn undirbúning til
hennar þarf og hve mikið veltur á því, að hún verði
oss til sóma og ekki til skammar. Hingað til hefir ekki,
svo menn viti, annað verið gert til undirbúnings en það,
að alþingi hefir veitt fé til að rita sögu sína og stjórnin
skipað þriggja manna Þingvallanefnd. Blöðin hafa lítið á
þetta minst, og er þar helzt að geta þriggja greina, er
birtust í Lesbók Morgunblaðsins 22. og 29. nóv. og 13.
des. f. á. Þær voru þakkarverð tilraun til að hefja um-
ræður um þetta mál, sem nauðsyn er að ræða opinber-
lega frá sem flestum hliðum áður en byrjað er á fram-
kvæmdum. Hér má ekki hafa þá aðferðina, sem oss