Fréttablaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 12
12 12. september 2009 LAUGARDAGUR FÉLAGSMÁL Vistheimilanefnd segir að meiri líkur en minni séu á að sumar viststúlkur á stúlknaheim- ilinu Bjargi hafi mátt þola illa meðferð í formi tiltekinna líkam- legra athafna og kynferðislegrar áreitni af hálfu einhverra starfs- kvenna heimilisins. Framburður viststúlkna annars vegar og starfskvenna Bjargs hins vegar um illa meðferð og ofbeldi á heimilinu stangast algjörlega á en nefndin segir í skýrslu sinni, sem birt var á þriðjudag, að frá- sagnir stúlknanna séu í meginat- riðum trúverðugar. Þá er bent á að starfskonurnar hafi persónulegra hagsmuna að gæta. Það kunni að skýra framburð þeirra. Hjálpræðisherinn starfrækti stúlknaheimilið Bjarg á Seltjarn- arnesi frá 1965 til 1967. Dvöldu þar samtals tuttugu stúlkur um lengri eða skemmri tíma. Til- efni vistunar var einkum ætluð aðkoma að lögbrotum, útivist um nætur, skróp í skóla, drykkja eða aðrir hegðunarerfiðleikar. Þær konur sem nefndin ræddi við sögðu allar að dvölin á Bjargi hefði verið þeim erfið og að þeim hefði almennt liðið illa þar. Auk aðskilnaðar við fjölskyldur nefndu þær erfið samskipti við starfs- fólk, strangan aga, frelsisskerð- ingu og refsingar sem ástæður vanlíðanarinnar. Flestar kvennanna sögðu að þær hefðu verið beittar líkam- legu ofbeldi af hálfu starfsfólks. Töluvert hefði borið á hótunum af hálfu starfsmanna og þær mátt sæta einangrunarvist á Upptöku- heimilinu í Kópavogi eftir strok af Bjargi. Samskipti þeirra við fjöl- skyldur hefðu verið takmörkuð; heimsóknir undir eftirliti, bréf rit- skoðuð og setið yfir símtölum. Fjórar af þeim sjö konum sem komu til viðtals við nefnd- ina greindu frá því að þær hefðu orðið fyrir kynferðislegri áreitni af hálfu tiltekinna starfskvenna. Hefðu þær kysst stúlkurnar tungukossum og strokið þeim innanklæða. Þær starfskonur sem nefndin ræddi við þvertóku fyrir lýsingar kvennanna. Samskiptin hefðu almennt verið góð og allar ráð- stafanir sem gripið hafi verið til hafi verið með hag stúlknanna í huga. Ásökunum um ofbeldi var vísað á bug. Þrátt fyrir að Vistheimilanefnd telji meiri líkur en minni á að sumar stúlknanna hafi mátt þola illa meðferð af hálfu einhverra starfskvenna Bjargs dregur hún ekki þá almennu ályktun að starfs- konur hafi kerfisbundið og reglu- lega beitt viststúlkur illri meðferð eða ofbeldi. bjorn@frettabladid.is Stúlkur máttu þola illa meðferð á Bjargi Konur sem voru vistaðar á stúlknaheimilinu Bjargi á barns- og unglingsárum sínum vitna um harðræði og kynferðislega áreitni á heimilinu. Starfskonur þess hafna slíkum ásökunum. Vistheimilanefnd dregur orð kvennanna ekki í efa. BJARG Hjálpræðisherinn starfrækti stúlknaheimili á Seltjarnarnesi í rúm tvö ár. Því var lokað síðla árs 1967 í kjölfar lögreglurannsóknar sem upphófst eftir strok einnar stúlkunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN LÖGREGLUMÁL Lögregla lagði hald á tuttugu skammta af hvítu efni sem talið er vera kókaín, auk lauss efnis og íblöndunarefnis í tveim- ur íbúðum í Reykjavík á miðviku- dagskvöld. Tveir karlmenn og ein kona voru handtekin á staðnum og færð til skýrslutöku. Þeim var sleppt að því loknu. Það var lögreglan í Borgarnesi sem fékk grunsemdir um að fíkni- efni væru á leiðinni upp í Borgar- fjörð og að þau væru ætluð til sölu þar. Hún fékk lögregluna á höfuð- borgarsvæðinu og sérsveit Ríkis- lögreglustjóra í lið með sér. Farið var í tvær húsleitir í Reykjavík þar sem fíkniefnin fundust, þar á meðal skammtarnir sem búið var að pakka inn í smásöluumbúðir. Einn einstaklingurinn sem handtekinn var í tengslum við málið var einnig tekinn fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Hinir handteknu hafa tengsl upp í Borgarnes. Enn er ekki ljóst hversu mikið magn fíkniefna um er að ræða, þar sem rannsóknarniðurstöður þar að lútandi liggja ekki fyrir, meðal annars á sundurgreiningu hvíta efnisins og íblöndunarefn- anna. Þá er eftir að yfirheyra fólk- ið sem handtekið var. Lögregla heldur áfram rannsókn málsins. - jss Tveir karlmenn og kona handtekin, grunuð um fíkniefnasölu í Borgarfirði: Tóku tuttugu kókaínskammta BORGARNES Lögreglan í Borgarnesi fékk pata af fyrirhugaðri fíkniefnasölu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KJARAMÁL Kynbundinn launa- munur viðskipta- og hagfræð- inga hefur dregist saman á milli ára, úr 7,5 prósentum í fyrra í 3,5 prósent í ár. Þetta kemur fram í könnun sem Félag viðskiptafræð- inga og hagfræðinga lét gera. Þar kemur fram að miðgildi mánaðarlauna félaga er nú 581 þúsund, sem er rúmlega átta pró- sentum hærri upphæð en í fyrra. Hjá konum nemur þessi upphæð 547 þúsund krónum, sem er níu prósentum hærra en í fyrra, en hjá körlum 636 þúsund krónum, sem er hækkun um sex prósent. Atvinnuleysi á meðal félags- manna er þrjú prósent. - kóp Viðskipta- og hagfræðingar: Launamunur kynja minnkar FEGURÐ HIMINGEIMSINS Geimferða- stofnun Bandaríkjanna birti í vikunni nýjar myndir frá sjónaukanum Hubble, sem hefur verið endurnýjaður. Hér sést fyrirbæri í geimnum sem minnir helst á viðkvæmt fiðrildi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Njóttu dásemda haustsins! Sæluhelgi á Icelandairhotel Klaustri 18.-20. september Gönguferðir, slökun, sérvalinn matseðill og gisting Fáðu nánari upplýsingar í síma 487-4900 ÞÓRSMÖRK Ný sending komin í verslanir! Parka Verð: 38.000 kr.Verð: 27.800 kr.Verð: 68.800 kr. BRAGI Ný sending komin í verslanir! Parka SVANUR Kósý, vindheld og vatnsfráhrindandi. Dúnúlpa Stærðir: 74, 86 og 92 Einnig til í dökkbrúnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.