Spegillinn - 01.03.1967, Blaðsíða 11
lækkoður
kosningooldur
Þingmenn eru víst sammála
um að lækka kosningaaldur nið-
ur undir táningaaldur. Mun það
vera meðfram af því, að yfir-
völd óttast, að hér rísi upp
sveitir rauðliða íslenzkra.
Munu bítlar hugsa sér gott til
glóðarinnar um að stofna sér-
stakan stjórnmálaflokk, er beri,
a.m.k. til bráðabirgða nafnið
„Rúntflokkurinn". Hafa verið
haldnir nokkrir rabb-fundir til
undirbúnings, á Skálanum og
Tröð og ýmsum tryllitækjum.
Fokkssöng hefur þegar verið
saminn, og er viðlagið svona:
„Rokk ,rokk, og tvist og shake
á Rúntinum bregðum við á
leik, leik, Ieik“.
Heyrzt hefur að íhaldssamir
þingmenn vilji láta kosningar-
rétt táninga vera bundinn þvf
skilyrði, að allir piltar komi vel
klipptir og greiddir á kjörstað,
og eins hitt, að kjólar stúlkna
séu, við sama tækifæri eigi
styttri en tveir þumlungar fyrir
ofan hné.
Mikill er Alexonder mikli
Vísir flytur okkur stórmerka
ritgerð um klippingameistara
nokkurn í París, sem kallaður
er Alexander mikli 20. aldar-
innar. Nafni hans í fornöld
lagði undir sig lönd, en þessi
leggur undir sig hausa hefðar-
kvenna. Sjálfsálit hefir Alexand-
er þessi nóg, enda segir hann:
„Konuna í dag skapaði ég fyrir
mörgum árum“. Hann er mjög
hlynntur hárkollum og segir um
það:
„Það hafa allar konur ráð á
að eiga hárkollu. Ef þær telja
sig ekki hafa ráð á því, þá verða
þær bara að vera án einhvers
annars, — t.d. spara mat“.
Alexander mikli tekur sann-
gjarnt verð fyrir vinnu sína:
Venjulegar konur borga aðeins
kr. 1000 fyrir klippinguna, en
ríkar konur og tignar auðvitað
miklu meira. Auk þess ríflegt
þjórfé til hinna fjölmörgu hjálp-
arkokka Alexanders.
Vísir á þakkir skilið fyrir að
kynna oss þetta mikilmenni, og
vér mælum með því, að þeir
bræður Haukur og Friðþjófur
Óskarssynir kynni sér starfsað-
ferðir hans.
Spegillinn 11