F Á L K I N N Kveðjur forsætisráðherra og Alþingisforseta. f f I 0'l%t-0-'tyi>'O'NMii-0'*%i'O''%t'0'<%'0''%i'O-Hl^ * o ¦.':¦* I o i o o I o o f o í o I í o I o f i o I o I o í ö I o f o . f o I o f o f o f o I o e o I ? t o í o f o I O í o I o í f 0 í O "«¦.. í o # o í o I o 5 o # o I o f o I o f o I 0 f o 0-"to.-o."tli. 0,^t'0-,Wi.-0.,'<li..O-,'lli.-0.,%*0-,,lli..O>,%.-0-,'ll«.0^........0-'»^0."lli..O Fáir að vísu, en þó nokkurir, lifa það að taka þátt í báðum þúsund ára hálíðunum á ís- landi til minningar um upphaf landnámsins 87b og stofnun allsherjarríkisins 930, í lokland- námsaldar hinnar fornu. En enginn nær að lifa nema lítinn hluta hinnar nýju land- námsaldar á tslandi. Með nqkkrum rjetti má teljja að lúð nýia landnám hefjist þjóðhátiðarárið, því að hið nýja landnám stendur í beinu sam- bandi við endurheimt frelsi og sjálfstæði og hefir tekið fjör- kippina með vaxandi orku við hvern fjöturinn, sem af var högginn. En þó að hin nýja landnáms- öld sje þegar að árum orðin jafngömul hinni fornu þá er jeg viss um að nýja landnámsóld- in er svo sem aðeins að hefjast. Og þó að núlifandi kynslóð Is- lendinga hafi lifað að sjá hið nýja landnám verða stórfeng- legra en nokkur gerði ráð fyrir, og þreifað á því í verkinu hyersu mikil gæði landsins í enn rikari mæli en jafnvel bjartsýn- ustu skáldin sáu í anda, þá er jeg viss um að hin unga kynslóð hinna alfrjálsu Islendinga á eft- ir að lifa enn stórfeldara nýtt landnám á íslandi og ennþá voldugri opinberun gæða lands- ins. Bjart var yfir landnámsöld íslands hinni fornu og stofnun hins íslenska allsherjarríkis fyr- ir þúsund árum. En það er trúa mín að yfir hinni nýu landnámsöld íslands ríki enn meiri heiðríkja. Heill þjer unga tsland, sem átt það í vændum að sjá og fá að taka sem lengstan þátt í hinu nýja landnámi í endurreisn hins þúsund ára gamla íslenska allsherjarríkis. TRYGGVI ÞÓRHALLSSON. Það er eftirtektarvert að höf- uðstaður íslands hefir risið upp einmitt á þeim stað, þar sem Ingólfur, hinn fyrsti landnáms- maður, settist að, það er og eft- irtektarvert, að Alþingi Islend- inga er sprottið upp af því hjer- aðsþingi, sem hdð var i land- námi Ingólfs. Gifta Ingólfs og hans bygðar er mikil. I Reykjavík hefir nútíðin tek- ið sjer bólfestu. Þar er mestur vöxtur og þroski islensks þjóð- lífs. Alþingi stendur þar nú föst- um fótum. En þó er annar stað- ur sjálfkjörinn, þegar minnast skal þúsund ára þingsögu. Til Þingvalla streyma þúsundirn- ar í sumar um það leyti árs, er Alþingi hið forna var sett. Leið- in yfir Mosfellsheiði er sviplítil eins og miðaldasaga þingsins, en þegar austur er komið blasir við ímynd fornaldarinnar, Þing- vellir við Öxará. Þar var Alþingi háð í nærfelt níu aldir. Þar lifa minningar fortíðarinnar í svip náttúrunnar. Á Þingvöllum býr fortíðin ennþá og vekur hugann lil umhugsunar um glæsilega fortið og atburðarríka sögu hinnar göfugustu og elstu stofn- unar þessarar þjóðar, Alþingis Islendinga. Sú taug er römm, sem dregur þúsundir til hins forna þingstaðar á þessu sumri. Enginn atburður er betur fall- inn til að vekja þjóðrækni og kveikja trú á framtíðinni í brjóstum íslendinga. Það er ekki róllaus þjóð, sem á þúsund ára þingsögu. Rætur nútíðarinnar standa vítt og þær munu skjóta þróltmiklum sprotum um langa framtíð. Göfug og glæsileg for- tíð skuldbindur, og þjóð, sem á slíka sögu, hefir sjer þroska- skilyrði. Löng þingsaga á að leiða til stjórnmálaþroska og festu um alla stjórnarhætti. Vits- munir Snorra goða og göfug- lyndi Halls af Síðu eru hyrning- arsteinar þjóðfjelagsins. Enn geymir íslenskt þjóðlif ýms þau einkenni, sem spá góðri framtíð. Fortíðin leggur nútíð- inni þær skyldur á herðar að varðveita öll þau einkenni, sem varðveitt hafa islenskt þjóðfje- lag um þúsund ár. Endurheimt sjálfstjórn leggur alla ábyrgð- ina á eigin herðar. Það eru verðleikarnir einir, sem varðveita þjóðirnar, ekki síst hinar smæstu. Af ofbeldi hafa þær einskis að vænta. En göfugt og glæsilegt þjóðlíf mun skapa oss tilverurjett enn um þúsundir ára. Til þess er þús- und ára minningarhátíð Alþing- is fallin, að vekja þá ábyrgðar- tilfinning og þjóðrækni, sem varðveitir frá glötun. Guð gefi að sá verði árangur hins mikla afmælisfagnaðar. Þá mun gifta Ingólfs fylgja þjóð vorri um ó- komnar aldir. ÁSGEIR ÁSGEIRSSON.