F A I, K I N N .......¦ o ¦"«,.¦ o ¦¦ ¦< i f»- o .'Hi,.-o -"Hif o .'«íí»- e "Ki.'0'"il..O-,lh. 0-,|l|i^0-"IJi.'0'"l:i''0.-'iu.-O-,iii..«-"lii.'O^|li1.0 Ríkiserfingjar Svía og Norðmanna. O..'iji>-O.,iiii.'O."^'O"iiip"O-|tn.'O.,iilKO-'lU.-O."li«'O'"ii..,0'" C-'!íi|.-0',,»f'O-"l||.-0''!'!l''©-"lll--0-,l!ll'' Gústaf Adolf krónprins. / tilefni af Alþingishátíðinni sækja ísland heim ríkiserfingjar Norðmanna og Svía, sem opinberir gestir. Að því er heyrst hefir ætlar Gústaf Adolf Svíakrónprins að ferðast til Geysis og Gullfoss að Alþingishátíðinni lokinni, en Ólafnr Noregskrónprins mun hafa hjer stutta viðdvöl. Kemur hann hingað á beitiskipinu Torden- skjold" en Svíakrónprins á herskipinu Oscar II." Meðan þeir standa við á Þingvöllum er þeim ætlaður bústaður í nýja bænum á prestsetrinu gamla. Oscar Fredrik Vilhelm Olaf GustafAdolf er 48 ára gam- all, elsti sonur Gustafs konungs V. og Victoriu drotningar, fæddur i Stokkhólmi. Á unga aldri stundaði hann nám við háskólana í Uppsölum og Kristianíu en síðan fjekk hann hermannamentun. Hann á mörg áhugamál, hefir gaman af ferðalögum og er mjög hneigðúr til fornfræði. Fijrri kona hans var Margaret dóttir her- togans af Connought, giftust þau árið 1905 og eru börn þeirra Gustaf Adolf hertogi af Vesturbotnum (sem vera má að komi hing- Ólaf ur krónprins. að á hátíðina) f. 1906, Sigvarður hertogi af Upplandi f. 1907, Bertil hertogi af Hallandi, f. 1912, Carl Johan Dalahertogi f. 1916 og Ingrid f. 1910. Ólafur krónprins Norðmanna er fæddur 2. júlí 1903, einka- sonur norsku konungshjónanna, Hákonar VII. og Maud drotningar. Fæddist hann í Appleton House í Englandi og hlaut nafnið Alex- ander Edward Christian Fredrik, en núverandi nafn sitt tók hann er faðir hans var tekinn til konungs yfir Noregi 1905. Ólafur krón- prins tók stúdentspróf 1921 en hefir síðan framast í hernum. Er hann mikið eftirlætisgoð norsku þjóðarinnar enda annálaður fyr- ir hispursleysi sitt og alúðlega framkomu. Það hefir líka orðið til að auka á vinsældir hans, að hann er íþróttamaður ágætur, ekki síst í þjóðaríþrótt Norðmanna, skíðagöngum og skíðahlaupum og hefir oft tekið þátt í hinum helstu skíðakappmótum i landinu. Þd er hann siglingamaður ágætur. Ólafur krónprins kvæntist i fyrra Mörtu Svíaprinsessu, dóttur Carls prins. Þau hjónin urðu nýlega fyrir þvi mikla óhappi, að bústaður þeirra, stórbýlið Skaugum, skamt frá Oslo, brann til kaldra kola og mistu þau ýmsa óbætan- lega muni við brunann. Stórbýli þetta höfðu þau hjónin feiigið i brúðárgjöf hjd Wedell Jarlsberg, sendiherr Nörðmánna í París. Bryndrekinn Oscar II"; á honum kemur Gustaf Adolf krónprins. Beitiskipið Tordenskjold", sem flytur Ólaf krónprins til íslands.