fálk'in n 27 Alþingismenn 1930. Sitjandi í fremstu röð (frú vinstri): Lárns Helgason, Einar Árnason, Ingibjörg H. Djarnason, Jóhannes Jóhannesson, Jón Jóns- son, lngólfur Bjarnason, Benedikt Sveinsson, Jörundur Brynjólfsson, Guðmundur ólafsson, Þorleifur Jónsson, Björn Kristjánsson, Haraldur Guð- mundsson. Standandi í annari röð: Páll Hermannsson, Ingvar Pálmason, Bjarni Ásgeirsson, Bernharð Stefánsson, Gunnar Sigurðsson, Magnús Jónsson, Ásgeir Ásgeirsson, Halldór Stefánsson, Hannes Jónsson, Sigurðtir Eggerz, Halldór Sleinsson, Jón Baldvinsson, Erlingur Friðjóns- son, Sigurjón Ólafsson, Jóhann Þ. Jósefsson, Hákon Kristófersson og Tryggvi Þórhallsson. Þriðja röð: Einar Jónsson, Jón Sigurðsson, Pjetur Ottesen, Jón Þorláksson, ólafur Thors, Hjeðinn Valdimarsson, Jón A. Jónsson, Sveinn Ólafsson, Jón Ólafsson, Jónas Jónsson, Magnús Guðmundsson og Jónas Kristjánsson. Á myndina vantar Magnús Torfason. Myndin er tekin í Alþingishúsgarðinum, af Lofti. Jörundur Brynjólfsson bóndi, f. 21. febr. 1884. Kosinn þing- maður Reykvíkinga 1916 og befir setið á þingi fyrir Árnesinga síð- an 1923. I Framsóknarflokki. Lárus Helgason bóndi, f. 8. á- gúst 1873, kosinn á þing af Vest- ur-Skaftfellingum við aukakosn- ingar 1922, hefir aftur setið á þingi fyrir þá síðan 1927. í Fram- sóknarflokki. Magnús Guðmundsson, hæsta- rjettarmálaflutningsmaður, f. 6. febr. 1879, kosinn á þing af Skag- firðingum 1916 og hefir jafnan setið á þingi fyrir þá síðan. Sjálf- stæðismaður. Magnús Jónsson próf., f. 26. nóv. 1887, var kosinn á þing fyrir Reykjavík við aukakosningar 1921 og hefir verið þingmaður þar síðan. Sjálfstæðismaður. Magnús Torfason sýslum., f. 12. mai 1868, sat á þingi fyrir Rangæinga árið 1901, fyrir ísa- f jarðarkaupstað 191619 og fyr- ir Árnesinga síðan 1923. í Fram- sóknarflokki. Ólafur Thors útgerðarmaður, f. 19. janúar 1892, kosirtn á þing fyrir Gullbringu- og Kjósarsýslu við aukakosningar 1926, og end- k^osinn 1927. Sjálfstæðismaður, Páll Hermannsson, f. 28. apríl 1880,, kosinn á þing fyrir Norð- ur-Múlasýslu 1927. Framsóknar- maður. Pjetur Ottesen bóndi, f. 2. á- gúst 1888, kosinn á þing af Borg- firðingum 1916 og endurkosinn síðan. Sjálfstæðismaður. Sigurður Eggerz fyrv. banka- stjóri, f. 28. febrúar 1875. Sat á þingi fyrir Vestur-Skaftafells- sýslu 191216, landskjörinn 5. ágúst 191626, kosinn þingmað- ur Dalamanna 1927. Sjálfstæðis- maður. Sigurjón Ólafsson skrifstofu- stjóri, f. 29. okt. 1884, kosinn á þing fyrir Reykjavíkurkaupstað 1927. Alþýðuflokksmaður. Sveinn Ólafsson útvegsbóndi, f. 11. febr. 1863, kosinn á þing fyrir Suður-Múlasýslu 1916 og hefir verið þingmaður kjördæm- isins siðan. Framsóknarflokks- maður. Tryggvi Þórhallsson forsætis- ráðherra, f. 9. febr. 1889. Kosinn á þing af Strandamönnum síð- an 1923. Ráðherra siðan 1927. Framsóknarmaður. Þorleifur Jónsson, bóndi, f. 21. ágúst 1864. Þingmaður Austur- skaftfellinga síðan 1909. Fram- sóknarmaður. Með tilskipun um endurreisn Alþingis var landinu skift í 20 einmenningskjördæmi og stóð við svo búið til 1857. Þá var þing- mönnum fjölgað um einn, með skiftingu Skaftafellssýslu í tvö kjördæmi. Með stjórnarskránni 1874 var þjóðkjörnum þing- mönnum fjölgað í 30 og með stjórnarskrá 1903 var þeim f jölg- að um fjóra, þannig að þing- mannatalan varð 40 að meðtöld- um konungkjörnum. Með stjórn- arskrámli 1915 voru konung- kjörnir þingmenn afnumdir en jafnmargir landskjörnir komu í þeirra stað, og voru þeir kosnir i fyrsta sinn 5. ágúst 1916. Loks var þingmönnum Reykvíkinga fjölgað um tvo og er þingmanna- talan siðan 42. Alþingishúsið, bygt 1881.