F Á L K I N N 53 Verslunin Edinborg. r '; _____ ¦¦ _£¦*" ' E" " H Wi'&y'. -"- " « ^W h -.^f.-.f " ' . ' jSB/SBí . *gÉ_i_:^ ! EDINBOPG gyijw-yn-ii .¦¦ ..¦ - ¦ , ' _£? tir L 59 ^'^^jjý^^j^^tojti^^ v sá-?ji-jí-/ííPt-:' ¦ ,5<( f^ULí*' ,-''" i .";"í ¦ §pv . / -' 3iiS8B8SSj ¦ Wo', '£.- .___i_^.'^ií-...:'_:' -Æ-- -.".."-_- _. " - ._ ¦ ."¦_ Í8.9.5. Verslunin Edinborg var stofn- uð í júní 1895 af Ásgeiri Sigurðs- syni og skosku firma, Copland & Berrie í Leith. Hóf hún göngu sína í húsum Þorláks O. Johnsen og hjelt þar áfram uns hún flutt- ist í hús Knudson's kaupmanns við Strandgötu, sem nú er Hafn- arstræti, og keypti hún það hús. Nokkrum árum seinna, 1905, reisti verslunin stórt og vandað verslunarhús við hlið þess og var rekin í háðum húsunum. Hið nýja hús var einstakt í sinni röð á þeim tíma, sem það var reist. Voru þar í fyrsta skifti hjer á landi notaðir sýningargluggar, og f jekk verslunin enskan mann til að skreyta þá. Miðstöðvarhit- un var í húsinu, og var hún þá álíka óþekt hjer á landi. Loks voru í fyrsta skifti notaðir pen- ingakassar (Cassa"), er nú þykja ómissandi í öllum verslun- um. Sýna þessi nýmæli, á hverri víðsýni og djörfung verslunin hefir verið reist. Verslunin tók brátt að færa út kvíarnar. Hafði hún tvenn pakkhús við Hafnar- stræti, þar seni nú eru hús Eim- skipafjelagsins ogEllingsenkaup- manns.. Auk þess keypíi hún Sturluhús við Austurstræti, þar sem nú er versl. Jacöbsen. Brátt tók verslunin að setja á stofn ýms útibú, á Akureyri, Isafirði, Hafnarfirði, Vestmannaeyjum, Akranesi og Keflavík. Var þá og rekin mikil fiskverslun og út- gerð. Árið 1915 brunnu vershinar- húsin, og fluttist þá verslunin í Ingólf shvol við Haf narstræti: Þar var hún rekin í 10 ár, þar til hún 1925 flutti í hið nýja vand- aða hús sitt. Árið 1917 keypti 1925. 190á. Ásgeir Sigurðsson alræðismaður verslunina og rak hana einn þar til 1926, að Sigurður B. Sigurðs- son varð meðeigandi og Walter Sigurðsson 1928. Verslunin Edinborg hefir lyft þungu Idassi í menningarsögu Is- lands. Er hún fyrsta verslunin, sem tekur upp peningaverslun og staðgreiðslu. Var þetta í byrjun afar-erfitt, svo sem vænta mátti, þar sem aðal-peningastofnun landsins, Landsbankinn, hafði litlu úr að spila átti ekki nema x/2 miljón króna hlutafje. Rakn- aði þó úr þessu, þégar firmað Copland &Berrie kom á f iskversl- uriinni við Spán og ítalíu. Má geta nærri, hverjar framfarir lýðs og lands hafa verið tengd- ar þessu nýmæli. Heildverslun Ásgeirs Sigurðs- sonar hefir starfað síðan 1919 og verslar með allskonar nauðsynja- vörur, svo sem matvörur, hrein- lætisvörur, sápur f rá hinni heims- frægu sápugerð Lever Bros. Ltd., Port Sunlight, og er nú stór inn- flytjandi bilagúmmís og gúmmi- skófatnaðar. Eru þær vörur frá hinu alþekta Goodrich-fjelagi. Edinborg er nú orðin ein stærsta og f ullkomnasta glervöru- og vefnaðarvöruverslun landsins. Hefir ætíð verið kappkostað að hafa eingöngu hinar vönduðustu og béstu vörur á boðstólum. Hafa einkunnarorð verslunarinn- ar ætíð verið: Lítill ágóði fljót skil".