F Á L K I N N 59 Jón Halldórsson & Co. Jón Halldórsson. Jón Óláfsson. Um aldamótin siðustu leituðu ýmsir efnilegir menn út trje- smíðastjett til útlanda, til þess að öðlast sjermentun í iðn sinni. Var Jón Halldórsson einn þeirra. Hafði hann farið utan ungur og framast í iðn sinni og einkum húsgagnágerð í Noregi, Dan- mörku og Þýskalandi. Þegar heim kom gerði hann fjelag við nokkra menn, árið 1905, er starfa skyldi einkum að húsgagnasmíði og varð nafn f jelagsins' það, sem yfir þessum línum stendur. Aðalstofnendur fyrirtækisins urðu fjórir, nfl. auk Jóns þeir Bjarni Jónsson, nú forstjóri Nýja Bíó, Jón Ólafsson og Kolbeinn heitinn Þorsteinsson. Síðan hús- gagnagerð þeirra tók til starfa hafa Islendingar jafnan getað sagt, að til sje í landinu að minsta kosti eitt iðnfyrirtæki í þessari grein, sem standi erlendum fyrir- tækjum sömu tegundar fyllilega á sporði. Vann fyrirtækið brátt tiltrú almennings fyrir vandaðar og smekklegar vörur og var með stofnun þess stigið nýtt spor i ís- lenskum iðnaði. Fjelagið varð brátt að auka við húsrúm það, sem það hafði keypt í upphafi og bygði þá hús- ið við Skólavörðustíg 6 B i Beykjavik, sem það enn hefir hækistöð sína i. Var það í þá daga talið stórhýsi, eri hefir þó orðið svo þröngt, að byggja varð við það árið 1922. Sjest húsið á tcikn- ingiumi hjer að ofan, nema nýja viðbótin, sem bygð var úr steini vestan við það, en fram við göt- una til vinstri er annað hús fje- lagsins, sem nú er notað til yöru- sýningar. Á neðri myndinni sjást menn við vinnu sína i aðahrje- smíðasal fjelagsins. Jón Halldórsson & Co smíðar aðallega húsgögn öll, hvír.ju nafni, sem nefnast, hvort heldur er í svefnherbergi, borðstoíur eða dagstofur. Var þessi iðnaður nýr hjer í landinu þegar þeir byrjuðu, þvi að þá voru naumast önnur húsgögn gerð hjer en þau, sem vandaminst var að smiða, og þá fyrst og fremst svefnstofu- húsgögn úr ódýru efni. Öll vand- aðri húsgögn varð að jafnaði að sækja til útlanda, en til þess höfðu fáir kringumstæður. Með stofnun þessa innlenda fyrirtæk- is opnaðist fólki nýr möguleiki til að eignast smekkleg húsa- kynni, það gat farið í. innlenda verslun og látið smiða húsgögri- in eftir sínum geðþótta. Og þó nú kveði mikið að innflutningi smið- aðra húsgagna frá útlöndum, má með sanni segja, að Jón Hall- dórsson & Co hafi átt mikinn þál t i því að auka híbýlaprýði fólks, ekki síst i Reykjavik, með vei'k- um sínum. Þess má geta, að fyrrum vatð oftast nær að fá erlenda menn til aðstoðar við herbergjafrágang húsa ef vanda skyldi til þeirra umfram það venjulega, enda cru hin eldri stórhýsi þessa lamis flest erlendra manna verk. Þegar Safnahúsið var bygt hjer und- ir stjórn erlends húsameistara, gafst hinu, þá nýstofnaða fje- lagi færi á að sýna, að það var vandasömu starfi vaxið, því «ð þvi var falið, að annast innri l lá- gang lestrarsalsins og smíða nús- gögnin i hann. Er þar enn að sjá ein af elstu handaverkum þcirra f jelaga. Næst má minnast á Eim- skipaf jelagshúsið; frágangur af- greiðslusalsins þar er verk Jóns Halldórssonar & Co. Og enn mi minnast Landsbankans, þar hef- ir sama fjelag sjeð um alt hið vandasama trjevirki þar innan- húss. Þessi þrjú dæmi eru tekin, sem dæmi þeirra verka fyrirtæk- isins, sem almenningur hefir tækfæri til að skoða. Geta má þess, að f jelagið hefir einu sinni ráðist út fyrir verksvið sitt; er það tók að sjer að byggja Stóra- Núpskirkju. Jón Halldórsson & Co hefir talið það fyrsta hlutverk sitt að efla innlendan iðnað með starfi sínu. Þessvegna hefir það lítið fengist við innflutning erlendra húsgagna, fyr en lítilsháttar sið- asta ár, af húsgagnategundum sem ekki eru framleiddar hjer. En rjett er að geta annars í sambandi við þetta. Þegar fjelagið tók til starfa var það flestum ókunnugt að hægt var með sjerkunnáttu að gera göm- ul hösgögn sem ný. Hjá fjölda manns má finna gömul húsgögn og vönduð, sem tímans tönn hef- ir unnið á og gert óásjáleg. Sumt af þessu hafa verið gripir, sem gengið hafa í ættir mann fram af manni og trygðin við ætt- argripinn oft valdið því, að hon- um var ekki útskúfað fyrir löngu. Þegar þessir gripir koma í hendur Jóni Halldórssyni & Co. kasta þeir ellibelgnum og verða besta stofuprýðin á heimihnu þegar þeir koma af tur úr hreins- unareldinum". Þegar bygt var við aðalhús f je- lagsins voru jafnframt keyptar nýjar vjelar til iðjunnar, af full- komnustu gerð sem þá þektist, og hafa því vitanlega aukið stór- lega afköst þessa iðnfyrirtækis. Vinna við það 17 manns að stað- aidri og jafnan nóg að gera, þrátt fyvir allar vjelarnar. Af hinum upprunalegu eigend- um f jelagsins eru nú aðeins tveir starfandi i því, nefnilega þeir nafnarnir Jón Ólafsson og Hall- dórsson, sem nú eru einkaeigend- ur þess og stjórnendur. Bjarni Jónsson gekk úr f jelaginu í sept- ember 1923 vegna starfs síns við hið núverandi fyrirtæki sitt og' Kolbeinn Þorsteinsson andaðist á öndverðu árinu 1928.