68 PXLKINN HLJÖÐFÆRAHfiS REYKJMÍÍIR var stofnað haustið 1916 af núverandi eiganda, frú Önnu Friðriksson og var fyrst um sinn til húsa við hornið á Templarasundi og Kirkjutorgi. Ekki voru vörurnar margbreyttar þá, að- eins píanó, orgel og nótur. Þá var engin sjerverslun hjer á landi í þess- ari grein. Stærri hljóðfæri voru pönt- uð beina leið frá verksmiðjunum og nótur seldar hjá bóksölum. 1918 flutti verslunin í suðvesturhorn Hótel ís- land", þar sem nú er Vöruhúsið. Þá voru vörur orðnar margbreyttari, grammófónar, plötur, harmónikur, munnhörpur, fiðlur o. fl. höfðu bæst við. 1919 flutti verslunin í húsið nr. 18 við Laugaveg. Hafði verslunin þá fengið einkaumboð fyrir ýmsar verk- smiðjur úti í heimi, svo sem POLYPHONWERKE í Berlín o. fl. HaustiS 1922 bætti verslunin við sig sjerdeild fyrir fínni leðurvörur og tók undir hana sjerstaka verslunar- búð í sama húsi. Sumarið 1924 flutti verslunin í húsið nr. 1. við Austur- stræti (Veltuna") gegnt Hotel Is- land" og hefir verið þar síðan. HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ er stærsta sjerverslun á íslandi í þessari grein. Hefir það vaxið geysilega á síðari ár- um og hefir orðið að bæta við sig sjerstakri deild fyrir stærri hljóð- færi, píanó og orgel. Er sú deild í húsinu nr. 1 við Veltusund. Er það einnig nótnádeild. Þar eru sýnd stærri hljóðfæri. Eru þau þar í tveim stórum verslunarherbergjum með stórum sýningargluggum. Auk þessa hefir Hljóðfærahúsið einnig sjeð um hljómleika fyrir erlenda og innlenda listamenn. Hafa allir hljóm- leikar erlendra heimsmeistara i Reykjavik verið haldnir fyrir milli- göngu Hljóðfærahússins. Má þar m. a. nefna fiðlusnillingana Henri Marteau, Issay Mitnitzkij, Wolfgang Schneiderhan (Wolfi"), F.v. Reuter, Hermann Diener, píanóleikarana Kurt Haeser, Annie Leifs, próf. Willy Klasen, Johanne Stockmarr, o. fl. celloleikarann Fritz Dietzmann, harmonikusnillingana Gellin & Borg- ström, Henri Eriksen o. fl., söng- varana frú Mysz-Gmeiner, Eggert Stefánsson, Helge Nissen, Sig. Mark- an, Henrik Dahl, Mary Alice Therp, Per Biörn, Gagga Lund, frú Darbo, Signe Liljequist, Áke Claesson o. fl. HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ fer nú með umboð fyrir mörg hin stærstu versl- unarfyrirtæki og verksmiðjur er- lendis, svo sem Herm. N. Petersen & Sön og Hupfeld-Gebr. Zimmermann (piano), Jacob Knudsen (orgel), Polyphonwerke A/G, og Edison Belí (Intern.) Ltd, Linguaphone Institute (málakensluplöur) o. fl. Auk þesshef- ir það á boðstólum vörur fráHismast- er's Voice, Columbia, Decca Gramo- phone Co., Itonia Gramophones Co, nótur frá stærstu nótnaforlögum heimsins og frá sínu eigin for- lagi, nýtísku leðurvörur frá Berlin, Wien og París. í sýningargluggum verslunarinnar eru ávalt til sýnis nýjustu og fullkomnustu vörur í of- annefndum greinum. Útsölur hefir Hljóðfærahúsið í Hafnarfirði, Borg- arfirði, á Akranesi, ísafirði, Akureyri og Siglufirði. Umboðsmenn verslun- arinnar á þessum stöðum geta ávalt með stuttum fyrirvara útvegað all- ar nýjungar með bestu kjörum. Veitið athygli! Bestu grammófónplötur heimsins leiknar af mestu snillingum, sem nú eru uppi. Allar íslensku plöturnar. Nýtísku dansplötur, 1.00, 2.25, 3.50, 4.50. Einkaumboð fyrir »POLYPHON«, Polydor & Brunswick. Borðfónar úr vandaðri eik, frá 65 kr., með loki aðeins 88 kr. Gólff ónar f vönduðum eikarkössum 265 kr., f mahognikössum 365 kr. Ein-faldar Harmonikur frá 11.50. Ti/ö-faidar fíariiiónikur frá 36.50. HOMERS kromatískar Konsert-Harmonikur M 185 krónum. Hljómfegurstu ferðafónar, frá kr. 56.50. Vandaðir Barnafónar kr. 22.50. Lítið inn' í HlJÓB'FÆRAIHJS HETKJAVIKUR (Stofnað 1916) Elsta og stærsta sjerverslun landsins í þessari grein. Austurstræti 1 & Veltusundi 1. Sími 656. á móti Hótel fsland. Síhtnefni: Hljóðfærahús. ^: J