70 F A L K I N N Marteinn Einarsson & Co. Það vakti mikla athygli, bæði hjer í bæ og úti um land, þegar hið mikla stórhýsi Marteins Ein.- arssonar & Go. var fullgert og verslunin flutt í það. Verslunin hefir lengi verið ein þektasta og vinsælasta í sinni grein og varð það einnig til að beina athygli að ýmsu um verslunina, er benti til sjerstakrar hagsýni eigandans og viðsýni. Það vakti t. d. athygli, hve fátt fólk þurfti til að af- greiða, og gekk þó afgreiðslan eins vel og greitt og frekast varð á kosið. Þetta var því að þakka, að fyrirkomulag sölubúðarinnar var á þann veg, að alt varð til að flýta fyrir afgreiðslunni. Hrein- læti er einnig á þann veg, að betra getur hvergi. Sjerstakir klefar eru í kvenvörudeíldinni á 2. hæð, þar sem hægt er að reyna ýms klæði. Lyfta er í húsinu, sem á svipstundu flytur vörur og fólk um húsið. Frágangur sölu- búðarinnar er á þann veg að- flestum mun að augnagaman. Eru skápar, borð, hillur og alt slíkt búin til af einni fremstu verksmiðju Breta, er sjergrein hefir í slíku. Eru þessir hlutir úr ljósri eik, hinir fegurstu. Allur annar frágangur er verk sjer- fræðinga, hverra í sinni grein. Marteinn Einarsson, sem nú er einkaeigandi verslunarinnar, stofnsetti í apríl 1912 verslun með vefnaðarvörur, matvörur og hreinlætisvörur á Laugaveg 44. Verslaði hann þarna í nokkur ár og lagði altaf meiri og meiri á- herslu á að auka vefnaðarvöru- deildina. Árið 1917 keypti hann húsið á Laugaveg 29 af H. S. Hanson kaupmanni. Hætti hann þá algerlega að versla með ný- lenduvörur, en lagði alla áherslu á vefnaðarvöruverslun. Um sama leyti seldi hann helming verslun- arinnar og hjet firmað eftir það Marteinn Einarsson & Co. og heitir það enn, enda þótt Mar- teinn í aprílmánuði 1921 keypti alla verslunina af t- ur. 1 húsinu á Laugaveg 29 verslaði Marleinn frá því í apríl 1918 og þar til í fyrrahaust, er hann flutti verslun sína í hið nýja hús við Laugaveg 31. Þá húseign hafði hann keypt haustið 1927 af Jónatan Þorsteinssyni kaupmanni, en hús hans er þar var áður var þá brunnið fyrir alllðngu. Á meðan Marteinn verslaði á Laugaveg 29, varð hann sífelt að slækka búð sína, sökum þess, hve viðskiflin uxu, og var búðin síðast orðin altof lítil. Lagerpláss all- mikið varð hann einnig að byggja við þá búð. Verslun Martcins hefir altaf farið vaxandi, frá því hann byrjaði fyrst að versla. Hafa framfarirnar orðið misjafnar, svo sem búast má við, en þó altaf farið vaxandi. Versl- unin hefir einnig aukist og það svo mjög, að hafa varð útibú til að sinna eftirspurn. Er það í Bankastræti 14, (Alfa). Hefir Marteinn og ætíð haft mikla verslun í Hafnarfirði og heild- sölu afarmikla út um land. Hin nýja búð Marteins er án efa hin fullkomnasta í sinni röð hjer á landi. Þar er til sölu alt til fatnaðar, bæði kvenna, karla og barna, frá hinu ysta tii liins insta. Öll álnavara fæst þar, einnig vefnaður, hverju nafni, sem nefnist, svo sem gluggatjöld, gólfábreiður, veggteppi o. s. frv. Er í kjallaranum sjerstök deild, sem afgreiðir gólfábreiður. Auk þessa selur verslunin allmikið af leðurvörum og hreinlætisvörum. Ölfusi, þar sem foreldrar hans bjuggu. 15 ára gamall rjeðist Vörugeymsla verslunarinnar er mikil. Húsið, sem er 22x13,5 metrar, er eitt af hinum stærstu í Reykjavík. Allur kjallari þess er notaður til gcymslu. Auk hans hefir nokkur hluti af lofthæð hússins verið lekinn til geymslu- plass. Er þó stundum lítið um pláss cinkum þegar mikið er um aðscndar vörur, t. d. vor og haust. Einar Erlendsson húsameist- ari sá um teikningu hússins í samráði við eiganda, en Korne- líus Sigmundsson byggingar- meistari sá um smíðið. Á 3. hæð er íbúð Marteins og er hún hin þægilcgasta og skrautlegasta í alla slaði. Marteinn Einarsson er fæddur 25. febrúar 1890 að Grímslæk í hann hingað til Reykjavíkur, að verslun hjá afa sínum, Jóni frá Hjalla, sem verslaði á Laugaveg 45. Vann hann fyrst framan af við verslunina á veturna, en var um sumur hjá foreldrum sinum. 1912 í apríl byrjaði hann sjálf- ur að versla, cn hafði ckki full- an aldur til þess þá. Varð hann að fá sjerstakt leyfisbrjef. Versl- un sína hina fyrstu rak hann, með hinum sama dugnaði, sem sífelt hefir einkent hann, bæði sem mann og kaupmann. Marteinn hefir í verslun sinni lagt mesta áherslu á staðgreiðslu og peningaverslun, en lítið sint lánsverslun. Hefir það ásamt því að hann borgar innkaup sín út í hönd, orðið til þess að lækka verðið á vörum hans. :i