72 F A L K I N N Eggert Kristjánsson & Co Inn- og útílutningsverslun. Hinn 4. maí 1922 stofnuðu þeir Eggert Kristjánsson og Eyjólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri Mjólkurf jelags Reykjavíkur versl- unarfjelag undir firmanafninu Eggert Kristjánsson & Co. Byrj- uðu þeir fjelagar með því að setja á stofn tóbaks- og sælgætis- verslun; í Aðalstræti 9 og ráku hana eitt ár, en undirbjuggu jafn- framt stofnun þess verslunar- reksturs er var aðalmarkmiðið: sem sje inn- og útflutningsversl- unar. I september 1923 liætti firmað verslun sinni í Aðalstræti en stofnaði jafnframt heildversl- un. Tók það á leigu skrifstofur í húsinu í Hafnarstræti 15, sem áð- ur var eign P. J. Thorsteinsson og síðar Jóns Laxdal. Hafa skrif- stofurnar verið þar alla tíð síðan, þar til í maí mánuði síðastliðn- um, að þær voru fluttar í hið nýja stórhýsi Mjólkurfjelags Reykjavíkur við Hafnarstræti og Tryggvagötu. Var húsnæðið fyr- ir löngu orðið of þröngt á fyr- nefndum stað, en i húsi mjólkur- fjelagsins hefir firmað fengið mjög rúmgóðar og skcmtilegar skrifstofur og sýnishornasafn. En vörubirgðir hefir firmað á Vest- urgötu 3, í geymsluhúsum Th. Thorsteinsson. Eyjólfur Jóhannesson var að- eins skamma stund i firmanu. Störf hans við Mjólkurfjclagið, sem uxu liröðum skrcfum, urðu svo mikil, að hann munekkihafa sjeð sjcr fært að sinna öðru. Gckk hann því úr firmanu síðla á árinu 1923 og seldi Eggert Kristjánssyni sinn hlut. Hefir Eggert verið einkaeigandi síðan. Eggert Kristjánsson byrjaði smátt og fór gætilcga, en brátt óx þó viðskiftavclta hans. Hon- um tókst að ná ýmsum ágætum samböndum við kunn og mikils- virt verslunarhús útlend og hef- ir hann getað boðið svo góð kjör í ýmsum vörugreinum, að hann mun vera stærsti innflytjandi á landinu hvað sumar vörutegund- ir snertir. Eggert Kristjánsson & Co. rek- ur verslun og viðskifti við flest Evrópulönd og einnig við Asíu og Ameríku. Firmað flytur til dæmis inn ýmsar landbúnaðaraf- urðir frá Danmörku svo og tó- baksvörur. og fleira. Einnig má nefna vjelbátana frægu, sem þetta firma hefir nýlega flutt inn þaðan og hlotið hafa hið, mesta hrós þeirra, sem vit hafa á fiskiskipum. Frá Noregi flyt- ur firmað inn niðursuðuvörur ýmsar, einkum fiskniðursuðu, ennfremur má nefna innflutn- ing á tunnum frá Noregi, einkum síldar- og lýsistunn- um, og hefir þessi innflutn- ingur verið afarmikill sum árin. Ýmsar fleiri vörur, scm hjer yrði of langt að telja, flytur firmað inn frá Noregi; geta má þess líka, að firmað hafði um mörg ar að- alumboð fyrir súkkulaði- og sætindagerðina Freja" sem mun vera hin stærsta í sinni röð á Norðurlöndum. En sá innflutn- ingur hætti, er norska krónan stórhækkaði, svo að firmað gat ekki fylgst með samkepninni. Frá Sviþjóð er m. a. flutt inn mikið af vefnaðarvörum, frá Þýskalandi einnig vefnaðarvörur ýmiskonar og nýlenduvörur, frá Hollandi ostar og margt fleira, frá Bclgíu súkkulaði (Cida) og niðursuðuvörur, frá. Frakk- landi fegrunarvörur ýmiskonar (Gibbs), frá Englandi allskon- ar nýlenduvörur og ávexti. Suð- ræn aldini af öllum hugsanleg- um tegundum flytur firmað inn frá Spáni, Italíu og Grikk- landi, en finni vefnaðarvörur ýmiskonar og leikföng eink- um frá Tjekkóslóvakíu og Aust- urríki. Af framantöldu má sjá, að firmað flytur inn flestallar venjulegar vörur fyrir vefnaðar- og nýlenduvöruverslanir auk byggingarefnis, veiðarfæra, mó- torbáta og því um líks. En sjer- staklega mikill er innflutningur- inn af allskonar ávöxtum, þurk- uðum og niðursoðnum , enda mun ekkcrt innlent firma hafa jafn mikinn innflutning í þeirri grein sem stendur. Hcfir nú verið minst nokkuð á innflutningsverslun firmans. En jafnframt hcfir Eggcrt Krist- jánsson lengst af keypt innlendar afurðir til útflutnings, einkum landbúnaðarafurðir. Má þar eink- um nefna saltkjöt, ull og gærur og hcfir mikið kveðið að þeirri verslun í suraum árum. Líka hef- ir firmað keypt afarmikið af sölt- uðijm og hertum húðum til út- flulnings og stundum verið stærsti útflytjandinn í þeirri vörugrein. Af sjávarafurðum hef- ir firmað ekki keypt mikið, en þó má ncfna sundmaga og lýsi. Út- flutningsverslunin hefir eins og áður er sagt, einkum beinst að landbúnaðarafurðunum. Eggert Kristjánsson er fæddur í Mýrdal í Hnappadalssýslu 6. okt. 1897, sonur Guðnýjar Guðnadótt- ur og Kristjáns Eggertssonar er þar bjuggu þá. Tveggja ára gam- all fluttist hann með forcldrum sínum að Dalsmynni og þar dvaldi hann æskuár sin, þangað til hann kom suður til Hafnar- f jarðar átján ára gamall og gckk á Flensborgarskóla veturna 1916 1919. Hingað til Rcykjavíkur fluttist hann fyrir fult og alt ár- ið 1920. Vann hann hjer við verslunarstörf fyrstu árin, þang- að til hann sctti upp verslun þá, sem áður getur. Hann er kvænt- ur Guðrúnu Þórðardóttur, Eyj- ólfssonar frá Vogsósum. Eggert varð fyrst almenningi kunnur hjer syðra fyrir íþrótta- iðkanir og þá einkum glímu. Var hann um eitt skeið í flokki hinna snörpustu glímumanna suður hjer, og reyndist hann of t frcmst- ur í flokki á opinberum glímu- sýningum. Hann er þjcttur á velli og þjettur í lund' eins og sagt er um góða Islendinga, rammur að afli og fimur. Nú cr hann hættur að sjást koma fram á glímuvöllinn girt- ur mcgingjörðum síntim, og sakna þess margir. Hann glímir nú í staðinn við vcrslunarrekst- urinn og fer honum þar að fyrra dæmi, að hann hefir betur. Egg- ert er gott dæmi þess, hve vel þeim manni gctur tekist að ryðja sjer braut í lífinu, sem búinn er orku, þrautscigju og dugnaði. Hann byrjaði með tvær hcridur tómar og hefir á tæpum átta ár- um komið svo undir sig fólun- um, að verslun hans stcndur nú framarlega i kaupsýslulifi lands- ins og hefir áunnið sjer vinsæld- ir og traust um alt land.