74 F Á L K I N N Hlutafjelagið % SHELL- r íslandi. Fhitningaskipið Skeljungur" Þýska flugvjelin D 1422 tekur benzin í Reukjavik. H.f. Shell á Islandi er stofnað í janúar 1928. Hefir þaÖ með höndum verslun á olíu, bensini, smurningsolíu o. fl. Fjelagið hefir reist stóra olíu- stöð við Skerjafjörð. Var hún bygð á árinu 1927 og tekin til notkunar i janúar 1928. I þeirri stöð eru þrír stórir olíúgeymar. Tekur hinn stærsti 4 þúsund smá- lestir of olíu, annar 2.500 smál. og hinn þriðji 1. 500 smál. Auk þess geymir sem tekur 100 smál. Þrír minni geymar voru og reistir og tekur hver þeirra 60 smál.. í fyrra var tveim geymum bættvið. Tekur hinn stærri 1.000 smál., en hinn minni 60 smál. Eru þann- ig í stöðinni 9 geymar alls. Frá stöðinni liggur 300 metra löng bryggja út í fjörðinn. Er það sennilega ein allralengsta bryggja hjer á landi. Á bryggju þessari eru olíutunnur f luttar úr landi og til skips eftir sporbraut. Með bryggjunni Uggja lika mikl- ar pípur, sem olíunni er dælt eftir. Fjöruborð Skerjafjarðar er mikið, og varð því af þeim or- sökum að hafa bryggjuna svona langa. En allmikið vantar þó á, að 5000 til 9000 smálesta skip, sem olíu flytja hingað, geti lagst að henni. Verður þvi að leggja pípum eftir flotholtum út að skipinu, og er olíunni dælt i land á þann hátt. Fjelagið kappkostar að flytja sem mestaf lausriolíunnisjóleiðis kring um land. Sparar þetta all- mikið, sökum þess, hve dýrt er að flytja í tunnum. Hefir fjelag- ið látið byggja vahdað olíuskip, stöðina í Reykjavík, hafa verið reist útibú á þessum stöðum: Akranési, 1 geymir, sem tekur 150 smál., ísafirði, tveir geymar, sem taka 100 og 150 smál., Siglu- firði, tveir geymar, sem taka 100 Aðalstöð Shell-fjelag sins við Skerjafjörð. sem annast flutninga kring um land. Skipið, Skeljungur", getur flutt um 150 smálestir af olíu i einu. Til að hagnýta sem best aðal- og 200 smál., Akureyri, 2 geymar, sem taka 200 og 350 smál., Seyð- isfirði, tveir geymar, sem taka 60 smál hvor, Norðfirði tveir geymar, sem taka 60 smál. hvor, Eskifirði, tveir geymar, sem taka 60 smál. hvor, Fáskrúðsfirði, tveir, sem taka 60 smál. hvor, Vestmannaeyjum, tveir^sem taka 100 og 150 smál. og í Njarðvík einn geymir, sem tekur 100 smál. Skipið ,Skeljungur' hleður hjer við aðalstöðina og fer kringum land með birgðir handa þessum aukastöðvum, þannig, að þar er ætíð nóg til af steinolíu, bensíni og smurningsolíum. Auk þessa eru bensíngeymar meðfram öllum aðalakvegum um landið. Er þar afgreitt bensin og smurningsolíur til bila og dráttarvjela. Olíugeymarnir við Skerja- fjörð eru hin vönduðustu smíði. Eru þeir að öllu leyti gerðir af íslenskum smiðum, og þykja eitt hið vandaðasta verk, sem íslensk- ir iðnaðarmenn hafa leyst af hendi. Þótti það, þegar stöðin var reist, bera vott um bjartsýni eig- enda hennar og trú á dugnað og hæfileika hinna íslensku járn- smiða, er þeim var falið smíðið að öllu leyti. Hafa geymarnir og annað það, er að rekstrinum lýt- ur, reynst hið besta, enda var það alt í upphafi talin fyrsta flokks viima. Var verkinu á sín- um tíma hraðað hið mesta, unnu allan timann 504.00 manns. Fram að stöðinni hefir f jelagið lagt vandaðan veg, einn hinn breiðasta og vandaðasta hjer á landi. Á bygging stöðvarinnar var byrjað fyrst í júní 1927 og lokið fyrir áramót. Hefir framkvæmdum fjelags- verið hraðað hið mesta, og hefir það á skömmum tíma unnið mikinn hluta af oliumarkaði hjer á landi. Eitt af útbúum fjelagsins, olíustöðin á ísafirði. Oliuskip 8600 smál. losar oliu á aðalstöðinni í Skerjafirði við Regkjavik.