F A L K I N N 81 Ásgeir G. Gunnlaugsson & Co. Fyrir 23 árum var mjög ólikt umhorfs hjer í Reykjavík því, sem það er nú. Er glöggt dæmi þess það, að í Austurstræti, sem þá eins og nú var aðalgatan í bænum, voru aðeins fáar sölu- búðir, þar á meðal nýlenduvöru- verslun Edinborgar, en hún var þar sem versl. Egill Jacobsen er núna, og verslun Miljónafjelags- ins, sem var á horninu við Póst- hússtræti, þar sem nú er Reykja- víkurapotek. En í Austurstræti var um þetta leyti engin vefn- aðarvörubúð, og erþaðþeimmun einkennilegra, sem nú eru óvíða i bænum samankomnar á einn stað fleiri verslanir af því tægi. 1. júní 1907 stofnuðu þrír ung- ir og framtakssamir Reykvik- ingar fyrstu vefnaðarvöruversl- unina við Austurstræti, undir nafninu Ásgeir G. Gunnlaugs- son & Co. Menn þessir voru Guð- mundur útgerðarmaður Guð- mundsson frá Ráðagerði, Kristó- fer járnsmiður Egilsson og Ás- geir G. Gunnlaugsson. Ásgeir tók að sjer forstöðu verslunarinnar og hafði alla afgreiðslu á hendi fyrst framan af með aðstoð einn- ar stúlku. Verslunin hafði á boð- stólum allskonar fatnað, karl- manna og unglinga, og aðrar vefnaðarvörur. Náði hann þeg- ar í stað góðum samböndum við útlend firmu um kaup á til- búnum fatnaði, og hefir ætíð staðið mjög framarlega i þeirri verslunargrein. Nokkru eftir að rekstur verslunarinnar var kom- inn í fast horf, rjeðist Þórður Gunnlaugsson, bróðir Ásgeirs, þangað og hefir hann starfað þar síðan Verslunin aflaði sjer fljótt mikilla vinsælda og hafa þær æ- tíð farið vaxandi með hverju ári, sem liðið hefir. Vörur sínar hef- ir verslunin að langmestu leyti keypt beint frá útlöndum. Hefir þetta gert sitt til að halda verð- inu lágu og viðskif tavinunum á- nægðum. Hefir verslunin nú bein sambönd við verslunarhús í Eng- landi, Þýskalandi, Hollandi, Frakklandi og um öll Norður- lönd. Saga verslunarinnar er ekki viðburðarik á venjulegan hátt. Hún hefir verið á hinum sama stað, Austurstræti 1, í þau 23 ár, sem hún hefir starfað. Árið 1915 andaðist Guðmundur frá Ráða- gerði, og keypti Ásgeir G. Gunn- laugson þá hans hluta í verslun- inni. Árið 1923 gekk Kristófer Egilsson út úr firmanu og var Ásgeir þá orðinn einn eigandi þess. Ásgeir G. Gunnlaugsson er fæddur 7. nóv. 1879 hjer í Reykjavík. Er hann ósvikinn Reykvíkingur, kominn af einni af helstu og þektustu ættum bæjarins. Stundaði faðir hans útveg hjer við Reykjavik í rúm- lega 40 ár, lengst af sem f ormað- ur á opnum bát. ¦ Seytján ára gamall, vorið 1897, rjeðist Ás- geir til Rjörns Kristjánssonar kaupmanns og starfaði i vefn- aðarvörubúð hans. Þessu starfi hjelt hann til 1907, er hann stofn- aði verslun sína, eins og að framan er getið. Verslun Ásgeirs G. Gunnlaugs- sonar hefir aldrei borist mikið á, en kappkostað með öðru en ytra glysi að fullnægja kröfum viðskiftavina sinna. Hefir hún aukist jafnt og þjett, svo sem sjá má af því að nú starfa að stað- aldri við verslunina 5 manns, auk Ásgeirs, sem ætíð stjórnar henni. ¦IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIB ¦IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIM AKTIESELSKABET 1 NORDISKE KABEL-OG TRAADFABRIKER I I K0BENHAVN AKTIEKAPITAL KR. 10.000.000 Telegram-AdreBse: KABELFABRIK BENNETTS REISEBUREAU 1 ETABL. 1850 HOVEDRONTOR: OSLO (RRISTIANIA). s s KABELVÆRK KABLER OG LEDNINGER AF ENHVER ART FOR LYS OG KRAFTOVERF0RING TELEGRAFI OG TELEFONI Filialkontorer i de större byer i Norge og udlandet. Reisebilletter udstedes. Sovepladser, sittepladser, dampskibsköier, auto- mobilpladser og skyds etc. reserveres. TRAADVÆRK BLANK OG GALV. TRAAD AF JERN OG STAAL. S0M, HESTESKOS0M, KÆDER, M0BELFJEDRE, PIGTRAAD. Sanatorie- og hotelophold ordnes. Hotelkupongs utstedes. Reiseruter utarbeides. Assurance. Pengeveksling. VALSEVÆRK KOBBER, MESSING, BRONCE, TIN, ALUMINIUM SAMT SPECIALLEGERINGER I PLADER, STÆNGER, R0R, TRAAD, PROFILER E.T.C. ¦IIIIIIIII!!IIHIIII|II|||||IIIIIII||1IIIIIII1IIIIII|||1IIIIIIIIII||||||||||Í ÍIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIEIIIIIIIIW