Fálkinn


Fálkinn - 30.05.1936, Blaðsíða 14

Fálkinn - 30.05.1936, Blaðsíða 14
14 F Á L K I N N V erslunarhiis Amlrjesar Anclrjessonar við Laugaveg 3. Klæðaverslun og saumastofa Andrjesar Andrjessonar 25 ára. Hinn 1. júní 1911 stofnaði Andrjes klæðskeri Andrjesson eigin sauma- stofu sína og verslun með karl- mannafatnað. Hóf hann starfrækslu sína í Þingholtsstræti 1. Þaðan flutti hann í Bankastræti 11, árið 1915, og var þar til vorsins 1918. Þá keypti hann hús og lóð Jónasar organista Helgasonar við Laugaveg 3. Breytti hann því litla liúsi, sem þá mun hafa verið nær 75 ára gamalt, og flutti í það. Rak liann þar síðan verslun sína og saumastofu þangað til haust- ið 1920, að hann flutti í nýbygðan eystri liluta húss síns, sem hann hafði þá látið byggja á lóðinni við Laugaveg 3. Viðbótarbyggingu við Andrjes Andriesson. þetta hús sitt ljet hann gera 1927, en fullgert var stórhýsi hans eigi fyr en á næsta ári, 1928. Andrjes Andrjesson byrjaði eigin starfrækslu sína í mjög smáum stíl. 1 fyrstu var starfsfólk hans aðeins einn sveinn, ein stúlka og einn lærlingur. En nú starfa hjá honum 45 manns, karlar og konur. Sýnir þessi mikla fjölgun starfs- manna hans, hve mjög verslun lians og iðnaður hefir aukist, enda mun Andrjes nú reka stærsta klæða- saumastofu allra hjer á landi. Hraðsaumadeild á karlafatnaði setti Andrjes á stofn árið 1933, og kvennfatasaumadeild og verslun með kvennfatnað opnaði hann 1935. Hefir hann sjálfur tvær búðir nú í húsi sínu við Laugaveg 3, aðra fyrir karlmannafatnað og hina fyrir kvenfatnað. Saumastofurnar eru og líka í húsinu, en þær eru í þrem deildum. í hinni fyrstu er aðeins unninn 1. flokks karlmannafatnaður, þá kemur hraðsaumadeildin og loks kvenfatadeildin. Til merkis um skilning Andrjesar Andrjessonar á högum starfsfólks sins, þykir vert að geta þess, að sami klæðskerasveinninn, Guðmund- ur Magnússon, sem byrjaði starf lijá lionum í upphafi, er enn starfandi hjá honum. Annar næst elsti starfs- maður Andrjesar er Axel Skúlason, sem lióf nám hjá honum fyrir 20 árum og er nú fyrir 1. fl. sauma- deildinni. Á síðastliðnum 25 árum hefir And- rjes Andrjesson oft farið utan til þess að afla sjer frekari kunnáttu í iðngrein sinni — og hefir hann lát- ið aðra njóta góðs af þekkingu sinni. Má þar t. d. benda á skrif hans, um karlmannafatatísku, í blöð og tíma- rit. í „Fálkanum" hafa hirst greina- flokkar eftir hann um þessi efni. Er hann og fyrir löngu síðan orðinn viðurkendur hér sem einn hinn mesti kunnáttumaður í iðngrein sinni. Það voru eigi fáir, sem töldu það óráð, er Andrjes hóf byggingu versl- unarhúss síns við Laugaveg 3, og töldu jjar djarft teflt, er hann keypti lóðina fyrir um 20 þús. kr. En nú munu þeir fáir vera, sem átelja fram- sýni og framkvæmdahug hans. Bygg- ingin er ein liin myndarlegasta í þessum bæ, og liggur ágætlega vel við til verslunar. Árið 1929 sigldi hann á heimssýn- inguna, sem þá var haldin í Barce- lona á Spáni. Var hann einn liinna fyrstu íslendinga, er flutti fatnaðar- vörur beint þaðan hingað til lands. Verslun og iðnaður Andrjesar And- rjessonar er nú mjög yfirgripsmikið, enda hefir þróunin verið mikil frá upphafi, og markviss stefna, sem aldrei hefir verið út af brugðið. Starf Andrjesar og athafnir sýna Þóslega, livað einbeittur vilji og framsýni getur áorkað. Þegar litið er yfir síðasta aldar- fjórðUng sjest, að framfarir hafa verið miklar á sviði karlmannafata- gerðar hjer á landi, en margt, segir Andrjes, að enn sje ábótavant í þeim efnum, og við ýmsa erfiðleika að etja. En liann kviðir engu um fram- tiðina — nema fjárhagsörðugleikum þeim — og gjaldeyrisskorti, sem nú þjáir þjóðina. Andrjes Andrjesson nýtur hylli og trausts innan lands og erlendis. L. Prentsmiðjur! D R U B I N prentsvertur og litir eru ávalt fyrirliggjandi hjá okkur. H. Benediktsson & Co. Sími 1228. Reykjavik. Blikb' oy stállýsistunnnverksmiðja J. B. PJETURSSONAR Ægisg-ötu 4 Reykjavík Tryggvagötu 10 Símar: Skrifstofan 3126 Verksmiðjan 3125 Heima 4125 Pósthólf 125 Elsta og fullkonmasta verksmiðja i sinni grein hjer á landi. Framleiðir lil liúsabygginga: Þakrennur Þak- glugga Rennujárn — Loftrör — Ventila o. fl. Til útgerðar: Allar tegundir af ljóskerum fyrir rafmagn, gas og olíu — Matarilát allskonar — Vatns- og olíu- kassa allar tegundir og allskonar smíðar úr látúni, zinki og blikki. Blikk- og stállýsistunnur. Úr skáldsögu: „Augu hennar voru sem tindrandi stjörnur, munnurinn líktist fullþroskuðum kirsiberjum og hið indæla höfuð hennar hvíldi á hálsi, hvítum og sívölum og löngum eins og álft“. ----x---- Maður nokkur í Chicago, Pur- naraen að nafni var orðinn leiður á lífinu. Hann keypti sjer skamm- byssu og skaut sig í hjartað, eða svo hjelt hann að minsta kosti. En hann dó ekki og þegar læknirinn fór að athuga hann kom það á dag- inn, að hjartað í Purnamen var hægra megin. Og nú er hann kom- inn til aftur. ----x----- Lögreglan í Gautaborg hefir kom- ist á snoðir um það að fjöldi falskra 25-eyringa hefir verið settur i um- ferð. Ekki hefir þó náðst i mann- inn eða mennina, sem falsað haf'i peningana.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.